Fréttir - Krafla.is

Frábær veiðiveisla í Veiðiflugum í dag
Kröfluflugur ehf. tóku nýverið yfir rekstur Veiðibúðarinnar Veiðiflugur að Langholtsvegi 111. Að Kröfluflugum ehf. standa Stefán Kristjánsson og Sólveig Ögmundsdóttir, eigendur Veiðibúðarinnar Kröflu Höfðabakka 3 og Friðjón Mar Sveinbjörnsson. Veiðibúðin Krafla hefur verið sameinuð Veiðiflugum að Langholtsvegi 111.

Um þessa helgi  er árleg Veiðimessa í gangi hjá Veiðiflugum og margt girnilegt í boði. 20% afsláttur er af öllum flugum í versluninni en hjá Veiðiflugum er í boði stærsta fluguborð landsins og úrvalið hvergi meira. Margvísleg önnur tilboð verða í gangi í dag. Þar má nefna einstakt tilboð á vöðlupakka þar sem boðið er upp á vöðlur og skó frá Sierra á aðeins 34.900,- krónur!! Þá má nefna mjög góð tilboð á línum og fatnaði.

Áhugasamir fluguveiðimenn geta prófað nýjustu flugustengurnar á markaðnum frá Loop en þar er um að ræða flugustengur sem eru ekki enn komnar í sölu á Íslandi. Echo flugustengurnar hafa vakið gríðarlega athygli fyrir mikil gæði og afar lágt verð.

Grillið verður í gangi og boðið upp á hægeldaða nautasteik og pylsur og gos og kaldur verður á kantinum. Við skorum á veiðimenn að kíkja við hjá okkur á Langholtsveginum og kynna sér frábær tilboð og góðar veitingar.

Þú mátt alls ekki missa af þessu
Frábær félagi í veiðitúrinn. Þessi hitabrúsi frá Fishpond kostar aðeins 7.900 krónur í Veiðibúðinni Kröflu.

Í Veiðibúðinni Kröflu Höfðabakka 3 fást aðeins vandaðar jólagjafir fyrir vandláta veiðimenn og þar er auðvelt að finna jólagjafir fyrir veiðimenn sem eiga svo til allt.

Við erum til dæmis með gott úrval af gæðavörunum frá Fishpond. Til jóla bjóðum við Fishpond vörurnar á 15% jólaafslætti og munar um minna.  Þetta eru fyrsta flokks vörur sem alla veiðimenn dreymir um.

Jólatilboðið okkar ,,Tvær flugur fyrir eina" er að okkar mati langbesta flugutilboðið á markaðnum fyrir þessi jól. Flugurnar eru á 50% afslætti til jóla og hefur þetta tilboð okkar vakið verðskuldaða athygli. Okkur er sagt að fluguborðið okkar sé í allra fremstu röð og í verslun okkar að Höfðabakka 3 er mikið úrval af fluguboxum, plast og tréboxum með flugum í á 50% afslætti. Betra verður þetta ekki.

Við hjá Veiðibúðinni Kröflu höfum 48 ára reynslu af fluguhnýtingum og fluguveiði.

Þegar kemur að því að velja flugur og annan veiðibúnað skiptir reynslan mestu máli.

Það er opið hjá okkur á morgun laugardag í Höfðabakka 3 frá kl. 11 til 16.
Símar 587-9500 og 698-2844.

Mjög góð veiðitaska frá Fishpond. Það er 15% afsláttur af öllum Fishpond vörunum í Kröflu til jóla.

Fluguboxin frá Kröflu eru í sérflokki og alla veiðimenn dreymir um að eignast svona box.

Við gröfum nöfn veiðimanna á viðarboxin sem eru íslensk gæðasmíði.

Tvær fyrir eina - aðeins í boði fram að jólum
Flugutilboðið í Kröflu er magnað. Nú er tækifærið fyrir veiðimenn að eignast allar vinsælu Kröfluflugurnar á hálfvirði fyrir jólin á meðan birgðir endast.

Fluguveiðimenn geta glaðst núna fyrir jólin því við hjá Veiðibúðinni Kröflu erum komin í jólaskapið og verðum með stórkostlegt tilboð í gangi fram að jólum. Við bjóðum tvær flugur á verði einnar fram að jólum eða á meðan birgðir endast. Tilboðið gildir varðandi allar flugur sem í boði eru í versluninni að Höfðabakka 3.

Þetta er besta flugutilboðið á markaðnum í dag og svo sannarlega hægt að gera frábær kaup. Nú er það gráupplagt að kaupa flugubox og setja í það ódýru Kröfluflugurnar sem reynst hafa frábærlega í gegnum árin. Þarna er því komin jólagjöf veiðimannsins í ár á frábæru tilboðsverði.

Nú er upplagt að gefa veiðimannainum flugubox í jólagjöf með hinum vinsælu Kröfluflugum á tilboðsverðinu.
Verslun okkar að Höfðabakka 3 verður opin á morgun laugardag frá kl. 13 til 16. Flugutilboðið er í gangi þar en einnig er hægt að panta flugur í síma 698-2844.

Óvenjulegir og glæsilegir vöðluskór
Nýju vöðluskórnir frá Vision eru nýtískulegir og sérlega glæsilegir.

Vision hefur nú sent frá sér nýja gerð af vöðluskóm sem þykja í senn óvenjulegir og glæsilegir. Urban Vision skórnir eru á mjög góðu verði, eru fisléttir og sterkir og fást aðeins í Reykjavík í Veiðibúðinni Kröflu í Höfðabakka 3.

Nýju skórnir frá Vision eru til í takmörkuðu magni en viðtökur hafa þegar verið frábærar. Skórnir eru til í stærðum 8, 9, 10, 11 og 12. Fyrstir koma fyrstir fá.

Í Veiðibúðinni Kröflu er mikið úrval af veiðivörunum frá Vision og landsins mesta úrval af íslenskum flugum. Við erum nýbúin að fá nýja flugusendingu og við eigum réttu flugurnar fyrir veiðimenn sem enn eiga eftir að renna fyrir þá fjölmörgu laxa sem synda um í ánum hérlendis. Við höfum 45 ára reynslu þegar fluguveiði er annars vegar og gerum okkar besta í að miðla þeirri reynslu til veiðimanna sem líta til okkar í Veiðibúðina Kröflu í Höfðabakka 3.

Síðasta holl í Hítará fékk 16 af 28 löxum á Kröfluflugur
Veiðikona með 68 cm lax sem hún veiddi á rauða Kröflu í Hítará um helgina.

Það er kominn mikill lax í Hítará á Mýrum og síðasta holl sem var við veiðar í ánni um liðna helgi var með 28 laxa. 16 af þessum 28 löxum komu á Kröfluflugur sem eru aldeilis að slá í gegn í veiðinni þessa dagana.

Hollið í Hítará var eingöngu skipað konum. 13 laxar veiddust á Kolskegg, 2 laxar á Kröflu orange og einn á rauða Kröflu. Þetta er ekki í fyrsta skipti í sumar þar sem um helmingur afla hjá holli kemur á Kröfluflugurnar. Er skemmst að minnast mikils afla hjá holli í Langá fyrir viku síðan en þá komu um 20 laxar af 51 á Kröfluflugur.

Veiðimaður með 92 cm lax sem tók Iðuna í veiðistaðnum Hólakvörn á Jöklusvæðinu.

Laxinn er að ganga af krafti á Jöklusvæðið. Borgar Antonsson leiðsögumaður setti í vænan 92 cm lax í þriðja kasti á Iðu í veiðistaðnum Hólaflúð og Björgvin Pálsson landaði fallegum laxi sem tók Kröflu orange í fyrsta kasti.

Minnum á að Kröfluflugurnar fást aðeins í Veiðibúðinni Kröflu, Höfðabakka 1.

Vision vörurnar núna fáanlegar í Kröflu
Keeper fluguveiðipakkinn frá Vision er vel útilátinn og á einstaklega hagstæðu verði.

Vision veiðivörurnar frá Finnlandi eiga marga trygga aðdáendur hér á landi og nú geta þeir og allir aðrir unnendur fluguveiðinnar tekið gleði sína á ný.  Vision vörurnar eru nú aftur fáanlegar í  Reykjavík en aðeins í Veiðibúðinni Kröflu að Höfðabakka 3.

Við hjá Kröflu fengum stóra sendingu frá Vision á dögunum og enn meira er á leiðinni til okkar. Við bjóðum upp á úrval af Vision vöðlum, stöngum, hjólum, gleraugum og línum ásamt ýmsu öðru og einnig mjög góðan Primaloft fatnað sem er á mjög hagstæðu verði. Þá erum við einnig með mikið úrval af smádóti fyrir veiðitúrinn frá Vision.

Í dag laugardag er opið hjá okkur til kl. 14 og lengur ef þurfa þykir. Við höfum stundað fluguveiði í 45 ár og miðlum glöð af reynslu okkar til veiðimanna á öllum aldri.

Síminn hjá okkur er 587-9500 eða 698-2844 og opið er virka daga frá kl. 10 til 18..

Kröfluflugurnar eru að skila góðri veiði - 10 laxar á Kolskegg í Langá
Þorsteinn Guðmundsson með gullfallega 13 punda hrygnu sem tók Kröflufluguna Iðu í Húseyjarkvísl nýverið.

Laxveiðivertíðin fer víða ágætlega af stað og nú berast fréttir af ágætri veiði í Norðurá, Langá og fleiri ám. Menn bíða afar spenntir eftir smálaxinum sem á að láta sjá sig þessa dagana í kjölfar stórstraumsins núna um helgina.

Víða berast fréttir af mjög góðri veiði á Kröfluflugurnar og eru þær að slá í gegn í sumar sem aldrei fyr. Kolskeggur fer þar fremstur í flokki ásamt Iðu og Kröflunum í ýmsum litum.

Í Laxá í Dölum voru franskir veiðimenn með þriggja daga holl nýverið. Fengu þeir þrjá laxa og alla á Kolskegg. Grétar Þorgeirsson, staðarhaldari við Laxá í Dölum, sagði í samtali við Krafla.is í gær að hann hefði séð ágætar torfur af laxi ganga í Laxá á flóðinu í gærkvöld.

Í fyrradag komu 7 laxar á land í Ytri Rangá og 5 af þeim voru á Iðu.

Holl sem var í Húseyjarkvísl í Skagafirði nýverið fékk 3 laxa og alla á Kröfluflugur. Fiskarnir fengust á Iðu, Kröflu orange og Kolskegg.

Í dag fréttum við af mikilli veiði á Kolskegg í Langá. Veiuðimaður sem við töluðum við í hvíldartímanum í dag var kominn með 6 laxa og alla á Kolskegg. Tveir aðrir veiðimenn í Langá sem við fréttum af voru með 4 laxa og alla á Koskegg.

Við munum halda áfram að segja frekari fréttir af laxveiðinni hér á Krafla.is og birtum fljótlega nýjar tölur frá Langá á Mýrum. Og að venju minnum við á að Kolskeggur, Iða og allar hinar Kröfluflugurnar fást aðeins í Veiðibúðinni Kröflu, Höfðabakka 3.

Að framansögðu má ljóst vera að það ætti að borga sig að kíkja til okkar í Kröflu áður en haldið er til veiða. Við verðum með opið á morgun sunnudag frá kl. 13 og fram eftir degi.

Þess má geta að flugusala hefur verið mjög mikil hjá okkur í Kröflu það sem af er vori og sumri og er ekki of mikið til af sumum tegundum. Ný flugusending er væntanleg fljótlega.

Síðasta holl með 6 laxa í Hítará - helmingur á Kröfluflugur
Steinar Petersen með fyrsta lax sumarsins úr Langadrætti í Hítará þetta sumarið. Laxinn tók 1/4" rauða Kröflu keilutúpu.

Hítará á Mýrum hafði á hádegi í dag gefið 20 laxa og er það álíka veiði og á sama tíma í fyrra. Aðstæður allar eru þó mun erfiðari nú en vatn er nálægt því að vera feti hærra í ánni í dag og á sama tíma í fyrra. Gerir það allar tilraunir veiðimanna erfiðari en ella væri.

Fjórða holl sumarsins lauk veiði á hádegi í dag, föstudag, og náði 6 löxum. Smálaxinn virðist vera að mæta en aðeins einn af þessum 6 löxum var tveggja ára lax. Eins árs fiskarnir 5 voru vel haldnir, 5-7 pund og flestir lúsugir. Laxinn tók reyndar mjög grannt og misstu veiðimenn marga laxa eftir stuttar en snarpar viðureignir. Mætti líklega nefna til sögu 12-15 slík dæmi.

Brúarfoss í Hítará. Myndin er tekin í gær. Mikið vatn en laxinn fer létt með að ganga fossinn við þessar aðstæður.

Spekingar tengdir Hítará til margra ára hafa haldið á lofti efasemdum um að lax gengi Brúarfossinn við veiðihúsið í miklu vatni eins og er í Hítará í dag. Síðasta holl afsannaði allar slíkar vangaveltur og fullyrðingar. Steinar Petersen, reyndur og afar snjall fluguveiðimaður, landaði í gær fyrsta laxi sumarsins í hinum fræga veiðistað Langadrætti. Laxinn var 5 pund, ekki lúsugur og tók rauða Kröflu 1/4 keilutúpu. Þar með var öllum ljóst að lax gengur Brúarfossinn þó vatnið sé mjög mikið. Og þegar 5 punda smálax kemst fossinn er hann auðvelt verkefni fyrir stælta tveggja ára laxa. Var það reyndar skoðun allra veiðimanna er skipuðu umrætt 6 laxa holl í Hítará að umræddur Brúarfoss væri ekki alvarleg hindrun á vegi laxfiska.

Veiðimenn sem könnuðu efra svæði Hítarár í gær urðu varir við lax í Markafljóti sem er afar snotur veiðistaður skammt fyrir neðan Grettisbæli sem er ekki síðri veiðistaður. Lax tók í gær Kröflufluguna Kolskegg í Markafljóti en takan var grönn og dugði skammt. Í morgun kastaði Gunnar Örn Pétursson Kolskegg í Markafljótið og leið ekki á löngu þar til silfraður smálax ,,straujaði" Kolskegginn með miklum látum. Þetta var skrautleg taka og eftirminnileg að sögn Gunnars Arnars sem er flestum hnútum kunnugur þegar kemur að fluguveiði og afar snjall og reyndur veiðimaður.

Breiðin er einn þekktasti veiðistaður Hítarár. Hér má sjá hve mikið vatn var í Hítará í dag. Kjörvatn líklega feti lægra.

Ekki virðist vera mikið um lax á neðra svæði Hítarár en svo virðist sem nokkrir laxar gangi í ána á hverju flóði. Veiðimenn í síðasta holli urðu ekki varir við lax í Steinastreng. Reyndar afar erfitt að vaða út á heppilegan stað til að ná góðum köstum á hylinn. Túnstrengir, allir þrír, voru þaulreyndir án árangurs. Kverkin var lífleg annað veifið en langir líflausir kaflar inn á milli. Breiðin galt fyrir mikið vatn. Stöku fiskur var þó farinn að tolla þar undir lok veiðitímans þegar rennsli árinnar lækkaði örlítið en við aðstæður dagsins í dag heldur Breiðin varla laxi.

Stærsti laxinn í sumar tók Kolskegg
Rafn Alfreðsson með stærsta laxinn sem veiðst hefur í sumar. 23 punda glæsileg hrygna sem tók Kolskegg.

Stærsti laxinn til þessa á nýhafinni vertíð veiddist fyrir tveimur dögum í Miðfjarðará. Það var breskur veiðimaður sem veiddi laxinn í veiðistaðnum Grjóthyl og var laxinn 102 cm langur og 23 pund. Gullfalleg hrygna og nýlega gengin.

Fiskurinn tók Kröflufluguna Kolskegg og var um létta túpuútgáfu að ræða af þessari mögnuðu flugu sem oft hefur gefið veiðimönnum mikla veiði. ,,Þetta var gullfalleg hrygna og viðureignin var skemmtileg. Það er alveg greinilegt að laxinn er að ,,fíla" Kolskegg eða hata hann, eftir því hvernig maður lítur á málið," sagði Rafn Alfreðsson leigutaki Miðfjarðarár í samtali við Krafla.is í kvöld.

Kolskeggur er þegar farinn að láta til sín taka í laxveiðiánum sem hafa verið opnaðar en Kolskeggur eins og hann á að vera fæst aðeins í Veiðibúðinni Kröflu Höfðabakka 3. Við ráðleggjum öllum veiðimönnum að taka Kolskegginn með í veiðitúrinn því þessi íslenska fluga er ein vinsælasta flugan meðal laxfiska og veiðimanna í dag.

Miðfjarðará var í gærkvöldi komin í 20 laxa og sagðist Rafn vera mjög ánægður með gang mála í upphafi vertíðarinnar.

Kröflugos 2015 - Gosið færist í aukana í dag - þökkum frábærar viðtökur
Fjölmargir veiðimenn hafa lagt leið sína á Kröflugosið og gert mjög góð kaup.

Veiðimenn fylltu veiðibúðina Kröflu um helgina og skemmtu sér konunglega á Kröflugosinu . Við höfum aldrei kynnst öðrum eins áhuga á okkar vörum og verslun og viljum þakka nýjum áhugamönnum um Kröflu í hundraðavís fyrir komuna. Verslun okkar, sem við stækkuðum á dögunum,  var smekkfull tímunum saman og viðstaddir nutu góðra veitinga og glæsilegra tilboða.

Kröflugosið stendur enn yfir og í dag sunnudag er opið hjá okkur frá 13 til 17. Kröfluflugurnar eru á sérstöku tilboðsverði á gosinu og afslátturinn allt að 50%. Allar vörur eru á kynningarverðum og hægt að gera mjög góð kaup.

Það hefur vakið sérstaka ánægju veiðimanna á gosinu að í glæsilegum tilboðsboxum okkar  sem eru á 50% afslætti eru einungis úrvalsflugur og í einu boxinu til að mynda þrjár útgáfur af Kolskeggi. Þá eru í boxunum margar útgáfur af Kröflunum og þær þar í hinum ýmsu litum og útgáfum. Fjölmargir veiðimenn sem koma í heimsókn til okkar segja okkur að fluguborðið í Kröflu sé það fallegasta sem þeir hafa séð og við erum ánægð með þá dóma enda eru veiðimenn bestu dómararnir og meira mark takandi á þeim en eigendum veiðiverslana.

Við minnum veiðimenn á að Kröfluflugurnar er einungis hægt að kaupa í Veiðibúðinni Kröflu, Höfðabakka 3.

Stengurnar frá Echo hafa vakið mikla athygli enda í fremstu röð í heiminum í dag. Og líklega fremstar þegar tekið er tillit til verðlagningar.  Í Echo stöngunum fá menn mjög mikið fyrir peninginn og línan hjá Echo er afar fjölbreytt. Allar Echo stengurnar eru með lífstíðarábyrgð.

Í fluguhjólum bjóðum við upp á hjól frá Echo og einnig erum við með hin heimsfrægu hjól frá Nautilus sem hafa vakið mikla athygli á Kröflugosinu.

Við bjóðum allt áhugafólk um veiði velkomið til okkar í dag í Kröflu og verðum með heitt á könnunni og kleinur að auki.