Nánari lýsing
Branda er ein af mörgum flugum eftir Kristján Gíslason sem eru að koma á markaðinn í fyrsta skipti. Kristján hannaði Bröndu árið 1969 og hún reyndist strax vera skaðræðis fluga og sýndu margir laxar henni áhuga. Kristján og synir hans veiddu mjög mikið á Bröndu um árabil en hún hefur ekki verið í almennri sölu fyr en nú. Þetta er afar glæsileg fluga að okkar mati og við skorum á veiðimenn að gefa henni tækifæri.