Nánari lýsing
Grýla er líklegast sú fluga eftir Kristján Gíslason sem er erfiðast að hnýta. Fyrsta laxinn veiddi Kristján á Grýluna í Norðurá árið 1963. Sannkallað meistraverk sem gaf mönnum mjög mikla veiði hér á árum áður. Síðustu árin hefur flugan einungis verið í boði sem túpa en nú hefur orðið breyting á því hér á Krafla.is og í verslun okkar að Höfðabakka 3 bjóðum við þessa fallegu flugu sem þríkrækju.