Nánari lýsing
Bára er gullfalleg fluga en hana hannaði Kristján Gíslason árið 1969 og er hún því með fyrstu flugunum sem hann hannaði. Bára gaf strax góða veiði og fékk ekki nafn fyrr en laxar lágu á bakkanum. Flugan er frekar einföld í uppbyggingu og hvítdoppótta perluhænan í skegginu gefur henni frískt yfirbragð.