Nánari lýsing
Kröfluflugurnar hafa oft vakið mikinn áhuga stórlaxa og Grænfriðungur er þar engin undantekning. Nú er Grænfriðungur, sem Kristján Gíslason hannaði árið 1995, kominn á þungri keilutúpu í þremur stærðum. Við erum afar ánægð með að geta nú boðið veiðimönnum þessa öflugu flugu.