Nánari lýsing
Þessa gullfallegu flugu hannaði Kristján Gíslason árið 1989 í beinu framhaldi af glæsilegum sigri Lindu Pétursdóttur í alheims fegurðarsamkeppni. Áður hafði hann hannað Hófí af sama tilefni og Stefán Kristjánsson hefur hannað Unni Birnu og er þá þrennan fullkomnuð. Margir veiðimenn hafa fengið afburða góða veiði á Lindu Péturs.