Nánari lýsing
Mér er enn í fersku minni veiðitúrinn í Eyjafjarðará. Vorum á svæði 2 og vorum að leita að bleikju. Komum á álitlegan veiðistað en ekkert gerðist þrátt fyrir mikið fluguframboð. Mágur minn setti Skrögginn á. Í fyrsta kast tók 4 punda bleikja og að tveimur tímum liðnum í svarta myrkri lágu 22 rígvænar bleikjur á bakkanum.