Nánari lýsing
Fyrir veiðitúr í Elliðaánum 1984 settist Kristján Gíslason, einu sinni sem oftar, niður við fluguborðið og hannaði nýja flugu. Eftir góðan árangur við Fljótið, veiðistað mjög ofarlega í Elliðaánum, sendi Kristján Stefán son sinn með nokkur eintök af græna Elliðanum til veiðifélaga síns sem var við veiðar í efsta stað í Elliðaánum, Höfuðhyl. Hittust þeir síðan eftir veiðitíma og þá mætti vinurinn með 3 laxa sem hann fékk á græna Elliðann. Sá græni skilaði sem sagt 6 löxum þann dag í Elliðaánum.