Nánari lýsing
Echo flugustengurnar eru hannaðar af Bandaríkjamanninum Tim Rajeff. Hann var í um áratug æðsti maður hjá G. Loomish og er fyrir margt löngu heimsfrægur fyrir hönnun á flugustöngum og vörum í tengslum við fluguveiði. Echo stengur eru rómaðar fyrir gæði og mjög lágt verð en Tim Rajeff hefur ávallt lýst því yfir að aðalmarkmið hans sé að veiðimenn fái sem mest fyrir þann pening sem þeir verja til kaupa á vörum fyrir fluguveiði.