Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

Monthly Archives: January 2009

  • Úthlutun veiðileyfa í Djúpadalsá hafin - nokkrir dagar lausir í sumar

    Við á Krafla.is erum að hefja úthlutun veiðileyfa í Djúpadalsá í sumar. Ljóst er að vinsældir Djúpadalsár eru engu minni en undanfarin ár.
    Í fyrra voru 1007 fiskar skráðir í veiðibók í Djúpadalsá og er um metveiði að ræða. Áin er sér á báti hérlendis að okkar mati  þegar kemur að silungsveiði með laxavon og sjóbirting að auki síðsumars og engin önnur sjóbleikjuá hér á landi er sambærileg við Djúpadalsá að okkar mati þegar kemur að mati á náttúrufegurð, afla, verði eða aðstæðum yfirleitt.

    Upp úr miðjum janúar munum við ljúka úthlutun í Djúpadalsá fyrir næsta sumar. Þeir veiðimenn sem hafa áhuga á að komast að í örfáum lausum hollum næsta sumar geta sent okkur póst á [email protected]
    Minnum einnig á hnappinn hér til hægri en þar er að finna allar upplýsingar um Djúpadalsá.

    Halla Hrund Logadóttir tekst á við fyrstu bleikjuna á ferlinum í Djúpadalsá þann 12. júlí í fyrra.

    Halla Hrund Logadóttir tekst á við fyrstu bleikjuna á ferlinum í Djúpadalsá þann 12. júlí í fyrra.

1 Hlutir

© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík