Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

Monthly Archives: September 2010

  • Frábærar flugur í sjóbirting - 15 punda birtingströll á Grýluna


    Sævar Hafsteinsson með 83 cm 15 punda sjóbirtinginn sem tók tommulanga Grýlutúpu.

    Sævar Hafsteinsson með 83 cm 15 punda sjóbirtinginn sem tók tommulanga Grýlutúpu.

    ,,Þetta er búið að vera mjög gott hjá okkur. Við höfum verið að prófa nokkrar flugur frá Krafla.is sem við höfum kannski ekki mikið notað áður og þær eru að þrælvirka svo ekki sé meira sagt. Við erum til dæmis búnir að fá nokkra mjög fallega sjóbirtinga á Grýluna sem við höfum ekki notað mikið til þessa og eins er Krókurinn að gefa. Stærsti sjóbirtingurinn er 15 pund, svakalega fallegur og mikill fiskur. Hann tók Grýluna sem er greinilega rosalega sterk í sjóbirtinginn ekki síður en laxinn," sagði Sævar Hafsterinsson í Mokveiðifélaginu en hann er núna við veiðar ásamt félögum sínum í Húseyjarkvísl í Skagafirði.

    ,,Það er eiginlega sama hvaða flugu við höfum reynt frá Krafla.is  Þær eru allar að virka. Við höfum verið að fá fiska á Kröflur, Kolskegg, Skrögg, Iðuna og Grýlu ásamt fleirum. Við erum mjög ánægðir með veiðina þrátt fyrir að það sé kalt og veiðitíminn sé farinn að styttast verulega," sagði Sævar.

    Iðan hefur líka verið að gefa frábæra veiði. Félagarnir eru komnir með 5 laxa og minnsta kosti 4 af þeim tóku Iðu flottúpuna frá okkur á Krafla.is í Höfðabakka 3. Iðan hefur líka gefið frábæra veiði í sjóbirtingi. Af gefnu tilefni vörum við veiðimenn við lélegum eftirlíkingum sem eru til sölu í öðrum veiðibúðum og á þeim flugum tökum við enga ábyrgð. Ef veiðimenn hafa áhuga á sterkum og gjöfulum flugum frá okkur þá eru þær eingöngu til sölu á Krafla.is og í verslun okkar að Höfðabakka 3.

    Grýlan í kjaftinum á tröllinu að löndun lokinni í gær.

    Grýlan í kjaftinum á tröllinu að löndun lokinni í gær.

  • Kolskeggur skilaði óðum fluguveiðimönnum 7 löxum af 10 í Stóru Laxá

    Óttarr Þór Sigurðsson með nýlegan lax sem tók Kolskegg í Stóru Laxá fyrir nokkrum dögum.

    Óttarr Þór Sigurðsson með nýlegan lax sem tók Kolskegg í Stóru Laxá fyrir nokkrum dögum.

    Stóra Laxá í hreppum er að vakna til lífsins en áin hefur verið afskaplega döpur í sumar og varla runnið langtímum saman sökum vatnsleysis.

    Vel skipað holl veiðimanna sem var við veiðar í Stóru Laxá á dögunum á svæði 1 og 2 fékk 10 laxa. Tilheyrðu veiðimenn þessir veiðifélaginu Óðfluga. Einn félaganna sendi okkur pistil og sagði meðal annars: ,,Við félagarnir vorum í Stóru Laxá á svæði 1-2 og lönduðum 10 löxum og voru flestir laxarnir teknir á stórhættulegu fluguna Kolskegg sem laxarnir greinilega standast ekki og svo kom einn lax á Skrögginn. Það voru prófaðar allar flugur í boxunum en þegar Kolskeggurinn mætti á svæðið þá bara gerðist eitthvað. Við þökkum kærlega fyrir okkur."

    Vignir Hreinsson með fallegan lax sem tók Skrögg flottúpu í Stóru Laxá nýverið.

    Vignir Hreinsson með fallegan lax sem tók Skrögg flottúpu í Stóru Laxá nýverið.

    Róbert Rúnarsson með fallegan lax sem tók Kolskegg í Stóru Laxá fyrir nokkrum dögum. Félagarnir í hollinu veiddu 7 af 10 löxum á Kolskegg.

    Róbert Rúnarsson með fallegan lax sem tók Kolskegg í Stóru Laxá fyrir nokkrum dögum. Félagarnir í hollinu veiddu 7 af 10 löxum á Kolskegg.

2 Hlutir

© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík