Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

Monthly Archives: July 2010

  • Rosaleg veiði á Iðu flottúpuna í Húseyjarkvísl - 14 á land og 9 á Iðuna

    ,,Þetta var góður veiðitúr og við lentum í ævintýrum að vanda. Það var komið þó nokkuð af laxi í ána og við urðum vel varir," sagði Hörður Hafsteinsson í samtali við Krafla.is en á dögunum voru hann og félagar hans í Mokveiðifélaginu við  veiðar í Húseyjarkvísl. Hollið fékk 14 laxa. 9 þeirra komu á Iðu long wing flottúpu, 3 á Kolskegg flottúpu, einn á gula Kröflu og einn tók Sunray Shadow.

    ,,Þetta voru flottir fiskar og meðalþyngdin mjög góð. Við misstum einnig marga fiska og þar á meðal mikið tröll sem tók stórfiskafluguna Skrögg sem long wing flottúpu. Mér fannst annars merkilegt hvað Iðan kom rosalega sterk út úr þessum veiðitúr. Við höfum ekki gefið henni alltof mikinn séns en hún kom rosalega sterk inn. Og tökurnar voru alveg ótrúlegar. Í eitt skiptið var græðgin svo mikil að laxinn kom upp úr ánni og tók Iðun á lofti. Bróðir minn stóð við hliðina á mér og við höfum aldrei séð annað eins. Stundum voru tökurnar svo svakalegar að það var ekki viðlit að losa Iðuna úr löxunum enda náðum við ekki til flugunnar," sagði Hörður.

    Hér fylgja með nokkrar glæsilegar myndir frá Mokveiðifélaginu úr veiðitúrnum. Við viljum taka fram að Iðu flottúpuna, Kolskegg, Skrögg og aðrar flugur okkar á Krafla.is færð þú aðeins í fullum gæðum hjá okkur eða í Höfðabakka 3. Hugsanlega gætu verið til  nokkur eintök í Ellingsen í Reykjavík. Við viljum vara fluguveiðimenn við lélegum eftirlíkingum af okkar flugum sem eru til sölu í veiðivöruverslunum. Til dæmis í Veiðibúðinni við lækinn í Hafnarfirði. Veiðimenn sem keyptu Kröflur í umræddri verslun höfðu samband við okkur og töldu flugurnar algjörlega ónýtar.  Á þessum flugum berum við enga ábyrgð frekar en öðrum eftirlíkingum. Veiðimenn geta aðeins verið öryggir um 100% gæði ef þeir versla okkar flugur hjá okkur.

    Ólafur Hafsteinsson með 88 cm langan lax sem tók Iðu 1,5" flottúpu.

    Ólafur Hafsteinsson með 88 cm langan lax sem tók Iðu 1,5" flottúpu.

    Hörður Hafsteinsson með 89 cm lax sem tók Iðu 1" flottúpu.

    Hörður Hafsteinsson með 89 cm lax sem tók Iðu 1" flottúpu.

    Sævar Hafsteinsson með 87 cm lax sem tók Iðu 1" flottúpu.

    Sævar Hafsteinsson með 87 cm lax sem tók Iðu 1" flottúpu.

    Hafsteinn með 84 cm lax sem tók Kolskegg 1" flottúpu.

    Hafsteinn Harðarson með 84 cm lax sem tók Kolskegg 1" flottúpu.

    Þorsteinn Guðmundsson með 82 cm lax sem tók Iðu 1" flottúpu.

    Þorsteinn Guðmundsson með 82 cm lax sem tók Iðu 1" flottúpu.

  • Nokkrir góðir dagar lausir í Djúpadalsá í sumar

    Nokkrir dagar eru lausir í Djúpadalsá í sumar en Djúpadalsá er skemmtileg og falleg bleikjuveiðiá með góðri laxavon í Reykhólasveit. Í fyrra veiddust í ánni 660 bleikjur og 35 laxar.

    Dagarnir sem eru lausir eru þessir: 27.-29. júlí, 23.-25. ágúst, 25.-27. og 29.-31. ágúst.

    Allar nánari upplýsingar eru gefnar hjá [email protected] og í síma 698-2844. Þá bendum við á að allar upplýsingar um ána er að finna hér til hliðar undir Djúpadalsá.

    Fallegar bleikjur úr Djúpadalsá.

    Fallegar bleikjur úr Djúpadalsá.

  • Fréttir héðan og þaðan - Kröfluflugur að gefa góða veiði um allt land

    Krafla.is er til húsa að Höfðabakka 3 fyrir neðan prentsmiðjuna Odda.

    Krafla.is er til húsa að Höfðabakka 3 fyrir neðan prentsmiðjuna Odda. Þar fá fluguveiðimenn langbestu flugurnar á markaðnum í dag og auk þess mjög góðar vörur til fluguveiði á afar hagstæðu verði.

    Eftir að við fluttum í nýja húsnæðið okkar að Höfðabakka 3 hefur sögum af mikilli veiði á okkar flugur fjölgað mjög. Hjá okkur í Höfðabakka 3 eru sagðar margar veiðisögur dag hvern á meðan veiðimenn fá sér nýlagað kaffi og kex af bestu gerð þegar best lætur. Ekki er leiðinlegt að greina frá heimsóknum tveggja fyrrum formanna Stangaveiðifélsgs Reykjavíkur í okkar verslun. Hér tölum við um Bjarna Júlíusson og Friðrik Þ. Stefánsson og vildu báðir óska okkur góðs gengis í baráttunni. Þökkum við fyrir það. Báðir hafa veitt vel á okkar flugur og ekki síður synir þessara merkismanna sem eru aflaklær miklar þrátt fyrir ungan aldur. Er skemmst að minnast þess að Elvar Örn Friðriksson fékk 23ja punda hæng á Skrögg long wing flottúpu á dögunum á Nessvæðinu. Júlíus Bjarnason hefur einnig veitt vel á okkar flugur.

    Veiði hefur verið mjög góð í Miðfjarðará undanfarið. Til okkar kom snjall fluguveiðimaður sem hafði lent í magnaðri veiði síðasta morguninn í hans veiðitúr fyrir nokkrum dögum í Miðfjarðará. Okkar maður var ekki búinn að fá mjög marga laxa en ákvað síðasta morguninn að gefa Kolskegg long wing góðan séns. Á hádegi, klukkan tólf, var okkar maður búinn að fá nóg. Hann setti í 8 laxa á Kolskegginn og náði 6. ,,Kolskeggur er alveg mögnuð fluga. Ég er enn alveg rasandi yfir því sem þessi fluga gerði fyrir mig þennan síðasta morgun í Miðfjarðará. Og ég var ekki síst hissa á því að Kolskeggurinn var að virka svona svakalega þegar aðrar flugur voru ekki að gefa neina veiði. Núna er ég að fara í Hofsá og þangað fer ég ekki nema að hafa nóg meðferðis af flugunum frá Krafla.is" , sagði veiðimaðurinn er hann lagði í hann austur á land.

    Hér er mögnuð saga frá veiðitúr veiðifélaga í veiðihópi einum á dögunum. Ferðinni var heitið í á norður í landi. Félagar í veiðihópnum hafa veitt mjög vel á ýmsar flugur frá okkur á Krafla.is undanfarin ár og með í för var landsfrægur skemmtikraftur og átti hann nú loksins að kynnast þessum gullmola norðursins fyrir alvöru. Skemmtikrafturinn var með í farteski sínu aðrar flugur en þorri félaga í veiðihópnum. Þrjóskaðist hann lengi við og var staðan þannig þegar kom að lokum veiðitúrsins að skemmtikrafturinn var fisklaus. Nýja flugan Avatar var aðalvopn skemmtikraftsins en hafði alls ekki virkað þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Aðrar flugur skemmtikraftarins voru alls ekki að skila árangri. Það var svo um það leyti að menn voru að huga að heimför að skemmtikrafturinn lét loks undan og hnýtti Kolskegg long wing flottúpu á taumendann. Til að gera langa sögu stutta þá fór skemmtikrafturinn heim stuttu síðar með lax i skottinu. Kolskeggur hafði bjargað enn einum veiðitúrnum.

    Fluguveiðimaður sem væntir árangurs í veiðitúrnum getur ekki farið til veiða nema með Kolskegg í fluguboxinu.

    Fluguveiðimaður sem væntir árangurs í veiðitúrnum getur ekki farið til veiða nema með Kolskegg í fluguboxinu.

    ,,Ég lagði leið mína í netverslun Krafla.is í Höfðabakka 3 fyrir veiðitúrinn framundan sem var í Svalbarðsá í  Þistilfirði. Aðallega til að svala forvitni minni sem voru engin takmörk sett. Til að gera langa sögu stutta þá fékk ég 4 laxa á flugurnar sem ég hafði keypt hjá Krafla.is og ég missti mjög marga laxa. Hollið fékk 12 laxa þannig að ég var í sjöunda himni. Kolskeggur og Iða voru að svínvirka og þegar stóru útgáfurnar voru ekki að gera sig setti ég undir míkró útgáfu af Iðu gárutúpunni. Þá skellti sér á hana stórlax. Hann reif út alla flugulínuna og ég mátti hlaupa á eftir honum langt niður eftir ánni. Löngu neðar stökk fiskurinn með miklum tilþrifum og skilaði litlu gárutúpunni. Þrátt fyrir þessi endalok var ég ánægður með það sem litla Iðan gerði fyrir mig. Þetta eru frábærar flugur."

    Við erum að vinna nýja frétt þar sem Iða sem long wing flottúpa kemur mikið við sögu. Sjón er sögu ríkari hér á Krafla.is fljótlega.

    Iða long wing flotúpa er að gefa mönnum rosalega veiði. Við birtum mjög fljótlega magnaðar fréttir af þessari frábæru flugu.

    Iða long wing flotúpa er að gefa mönnum rosalega veiði. Við birtum mjög fljótlega magnaðar fréttir af þessari frábæru flugu.

  • Elvar Örn rauf múrinn - 23 punda tröll tók Skrögginn í Kirkjuhólmakvíslinni

    Elvar Örn Friðriksson með laxinn glæsilega sem tók hjá honum Skrögg long wing flottúpu í Kirkjuhólmakvíslinni um liðna helgi.

    Elvar Örn Friðriksson með laxinn glæsilega sem tók hjá honum Skrögg long wing flottúpu í Kirkjuhólmakvíslinni um liðna helgi.

    ,,Þetta var alveg ógeðslega gaman. Ég var búinn að sjá að hann hafði mikinn áhuga á flugunni. Hann var búinn að koma 4-5 sinnum á eftir Skröggnum og sýna honum mjög mikinn áhuga. Ég hélt mínu striki, kastaði alltaf eins og þar kom að hann réðst á Skrögginn og var fastur," sagði Elvar Örn Friðriksson, sem veiddi 23 punda lax á Skrögg Long wing flottúpu í Laxá í Aðaldal um liðna helgi.

    Þetta var tímamótafiskur hjá þessum unga og snjalla veiðimanni, sem segja má að hafi alist upp á bökkum Norðurár undir öruggu eftirliti föðurins, Friðriks Þ. Stefánssonar, fyrrverandi formanns Stangaveiðifgélags Reykjavíkur. ,,Ég notaði tommulanga Skrögg flottúpuna sem gárutúpu og það var mjög flott að sjá þegar hann tók fluguna. Strax á eftir tók hann 3-4 mjög ákveðnar rokur og ég réð ekki neitt við neitt. Viðureignin tók rúmar 30 mínútur og það var mjög notaleg tilfinning að sjá tröllið í háfnum hjá Júlíusi Bjarnasyni sem aðstoðaði mig við löndunina. Hængurinn var 102 cm langur og vigtaður 23 pund," sagði Elvar Örn

    Elvar Örn fékk annan lax á Skrögg á Nessvæðinu, 11 punda lax. ,,Það er samdóma álit manna hér að mun meira sé hér af stórlaxi núna en áður. Heimamenn segja að ekki hafi sést meira magn af stórlaxi í 30 ár," sagði Elvar Örn.

    Flottúpurnar okkar á Krafla.is eru að slá í gegn. Við vitum af veiðimönnum sem eru að veiða vel á flottúpurnar og aðrar flugur frá okkur í Húseyjarkvísl þessa dagana og einnig höfum við heyrt af mikilli veiði í Norðurá undanfarna daga á Kolskegg.

    Stórlaxaflugan Skröggur í long wing útgáfu.

    Stórlaxaflugan Skröggur í long wing útgáfu.

Hlutur 1 til 4 af 7

Síða:
  1. 1
  2. 2
© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík