Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

Monthly Archives: June 2013

  • 19 laxar í opnun við Iðu - réttu flugurnar fyrir Iðuna fást hjá Veiðibúðinni Kröflu

    Veiðisvæðið við Iðu. Veiði í byrjun sumars hefur verið óvenjugóð síðustu tvö sumur.

    Veiðisvæðið við Iðu. Veiði í byrjun sumars hefur verið óvenjugóð síðustu tvö sumur. Kröflumynd SK

    Veiði hófst við Iðu í Biskupstungum sl. mánudag og veiddi opnunarhollið í einn og hálfan dag. Alls komu 19 laxar á land og voru flestir þeirra 10-15 pund og afar vel haldnir.

    Veitt er á þrjár stengur við Iðu en í opnuninni að þessu sinni kom öll veiðin á tvær stengur sem gerir aflabrögðin enn áhugaverðari. Er þessi afli líkast til besta opnun við Iðu í mjög langan tíma ef ekki besta opnun frá upphafi.

    Mikið var af laxi á Iðusvæðinu þegar opnunarhollið var þar á ferðinni og sást mikið af laxi og veiðimenn misstu mjög marga laxa. Mesta fjörið var fyrsta morguninn en þá komu 12 laxar á land, 4 náðust síðan seinni partinn og morguninn á öðrum degi gaf 2 laxa. Reikna má með að eitthvað dragi úr veiðinni næstu daga en þetta er annað sumarið í röð sem gefur mjög góða veiði í byrjun. Opnunardagurinn í fyrra gaf 11 laxa.

    Veiðisvæðið við Iðu er fyrir margra hluta sakir óútreiknanlegt. Svæðið breytir sér mikið frá ári til árs en þess verður ekki langt að bíða að við segjum nánar frá svæðinu hér á Krafla.is

    Fyrir þá veiðimenn sem eru að fara á Iðuna í sumar eigum við í Veiðibúðinni Kröflu við Höfðabakka réttu og bestu flugurnar og erum eina veiðibúðin sem býður upp á allar aflahæstu flugurnar við Iðu undanfarna áratugi.

  • Allir laxarnir í opnun á Alviðru tóku Kolskegg

    Sigurður Þóroddsson með glæsilegan lax á Alviðru sem tók létta Kolskegg túpu með keilu. Mynd birt með leyfi SÞ

    Sigurður Þóroddsson með glæsilegan lax á Alviðru sem tók létta Kolskegg túpu með keilu. Mynd birt með leyfi SÞ

    Enn er laxveiði með miklum ágætum og ekki útlit fyrir annað en gott veiðisumar. Of snemmt er þó að spá um framhaldið en næstu 10 dagar ráða mjög miklu um veiðina í sumar.

    Veiði hefur víða farið vel af stað og Sogið er þar engin undantekning. Veiði hófst í Soginu sl. mánudag og þá komu tveir nýgengnir laxr upp á efsta svæði Sogsins, Syðri Brú. Þetta voru 12 og 7 punda fiskar sem Siggi í Sláttuvélaþjónustunni, árnefndarmaður í Soginu, veiddi á þýska Snældu.

    Fyrsti morguninn á Alviðrusvæðinu var líflegur en þá komu þrír laxar á land og tóku þeir allir létta Kolskegg keilutúpu 1,5". Tveir fiskarnir komu á land á Breiðunni og einn á Öldunni. Allir voru laxarnir afar vel haldnir, 77, 80 og 80 cm langir. ,,Þetta var magnað og greinilegt að Kolskeggurinn var að virka eins og venjulega," sagði Sigurður Þóroddsson sem var við veiðar þennan opnunardag í Alviðru. Félagar hans voru ekki með Kolskegg en reyndu aðrar svartar og silfraðar flugur en viðbrögð við þeim voru engin.

    Við minnum á að Kolskeggur fæst einungis í Veiðibúðinni Kröflu, Höfðabakka 3.

    Fróðlegt verður að fylgjast með veiði í Soginu í framhaldinu en mikið ku vera til af lausum veiðileyfum á flestum svæðum.

  • Allt annar lax á ferðinni nú en í fyrra

    Árni Friðleifsson, varaformaður SVFR, með annan lax sumarsins úr Norðurá en laxinn tók þunga Iðu túpu.

    Árni Friðleifsson, varaformaður SVFR, með annan lax sumarsins úr Norðurá en laxinn tók þunga Iðu túpu sem veiðimenn fá aðeins í Veiðibúðinni Kröflu í Höfðabakka.

    Miklar fréttir berast þessa dagana frá mörgum laxveiðiám og í þeim öllum er sami tónninn, mikill lax að ganga og þetta lítur mjög vel út. Og einnig eru menn sammála um að laxinn sem veiðst og sést hefur sé óvenju feitur og pattaralegur og mun betur á sig kominn en til að mynda í fyrra.

    Þrátt fyrir að nokkur öflug teikn séu á lofti um góða veiði í sumar er rétt að hafa vaðið fyrir neðan sig. Varla eru menn búnir að gleyma byrjun laxveiðitímabilsins í fyrra. Hvernig þetta allt leit svo stórkostlega út um mánaðamótin júní/júlí og hrundi svo gjörsamlega á nokkrum dögum í upphafi júlí.

    Veiðin sjálf virðist byrja álíka vel og í fyrra, eilítið betur ef eitthvað er. Næstu dagar eða tvær vikur í mesta lagi skera úr um það hvort sumarið verður gott eða slæmt. Afar fróðlegt verður að sjá hvernig göngur verða í Jónsmessustrauminn sem er núna um helgina.

    Farið er að bera á töluverðu magni af smálaxi í flestum þeim ám sem opnað hafa og vitrir menn segja það ávísun á sterkar göngur smálaxa. Laxá í Kjós, Straumfjarðará, Laxá í Leirársveit, Hítará, Fnjóská, Laxá í Aðaldal og eflaust einhverjar fleiri hafa allar gefið fallega laxa í upphafi vertíðar og Guð láti gott á vita.

    Varðandi Norðurá má benda á ágæta veiði í Straumunum þar sem Norðurá rennur í Hvítá. Þessir sömu vitru menn segja að ef vatn er mikið í Norðurá eins og verið hefur frá upphafi veiðitíma þá eigi lax alls ekki að stoppa í Straumunum heldur ganga rakleitt í Norðurá. Þrátt fyrir þetta mikla vatn í Norðurá hefur veiði verið ágæt í Straumunum og menn halda að það viti á meiri umferð laxa en til að mynda í fyrra.

  • Norðurá í 170 löxum og framhaldið lítur vel út

    Einn af fyrstu löxum sumarsins hefur hér tekið Iðu túpu hjá Herði Birgi Hafsteinssyni stjórnarmanni SVFR á Bryggjunum.

    Einn af fyrstu löxum sumarsins hefur hér tekið Iðu túpu hjá Herði Birgi Hafsteinssyni stjórnarmanni SVFR á Bryggjunum. 

    Veiðimenn sem nú eru við veiðar í Norðurá láta vel af sér og eru allar aðstæður mjög góðar og útlitið gott.

    Á meðal veiðimanna sem hófu veiðar á hádegi í gær, miðvikudag, er Jón G. Baldvinsson fyrrverandi formaður SVFR og formaður Árnefndar Norðurár, en fáir ef einhverjir þekkja Norðurá betur en hann. ,,Staðan er bara vel viðunandi. Við erum komnir með 14 eða 15 laxa á einhverjar 6 stangir eftir einn dag og það er töluvert af fiski gengið í ána og vatnið er mjög gott," sagði Jón í samtali við okkur á Krafla.is fyrir stundu.

    Jón sagði áberandi hve fiskurinn væri miklu betur á sig kominn núna en í fyrra. ,,Þar er mikill munur á og það er allt annað að sjá þennan lax. Við fengum til dæmis í morgun lax sem var 66 cm langur en hann var góð 7 pund. Þetta lítur vel út hérna við Norðurá upp á framhaldið að gera og það er greinilega að ganga vel í hana af laxi. Fiskurinn er nokkuð vel dreifður og það eru komnir um 100 laxar upp fyrir teljarann við Glanna," sagði Jón G. Baldvinsson og bætti við að Kolskeggur og Kröflur hefðu gefið þó nokkra laxa af þeim sem þegar væru komnir á land.

Hlutur 1 til 4 af 7

Síða:
  1. 1
  2. 2
© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík