Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

Monthly Archives: February 2013

  • Mikið fjör á Kröflugosinu í Höfðabakka 3 - Kröflugosið líka á netinu

    Þetta glæsilega fluguúrvl er til sölu á Kröflugosinu á 30% afslætti og fluguboxið fylgir frítt með.

    Þetta glæsilega fluguúrvl er til sölu á Kröflugosinu á 30% afslætti og fluguboxið fylgir frítt með.

    Nú erum við búin að setja mikið af vörum sem eru á útsölunni hjá okkur inn á www.Krafla.is undir flipanum ,,Kröflugos" þannig að nú geta enn fleiri nýtt sér það frábæra úrval sem er á Kröflugosinu.

    Fjölmargir veiðimenn lögðu leið sína til okkar um helgina og gerðu sannkölluð reyfarakaup. Við höfum varla undan að raða flugunum okkar í box en þær eru nú á 10-40% afslætti. Þá er búin að vera mikil sala á vöðlum, vöðluskóm, veiðifatnaði, flugulínum, flugustöngum og alls kyns veiðidóti enda afslátturinn mjög góður.

    Enn eigum við eftir mjög góðar vörur á hreint frábæru verði. Þar má nefna einhendur í silungsveiði á innan við 10 þúsund krónur og hágæða fluguhjól á langt innan við 20 þúsund krónur. Sjón er sögu ríkari.

    Við opnum á ný í fyrramálið og opið verður alla næstu viku frá klukkan 11 til 18. Um næstu helgi verður opið frá klukkan 11 til 16 á laugardag og 13 til 16 á sunnudaginn.

  • Gos hafið í Kröflu - Allt að 60% afsláttur af öllum vörum - 10-30% afsláttur af Kröfluflugunum vinsælu - hægt að gera hrikaleg góð kaup

    Kröfluflugurnar er nú hægt að fá á frábæru verði í Veiðibúðinni Kröflu.

    Kröfluflugurnar er nú hægt að fá á frábæru verði í Veiðibúðinni Kröflu. Kröflurnar og allar aðrar flugur frá Kröflu fást aðeins í Veiðibúðinni Kröflu, Höfðabakka 3.

    Það er hafið gos í Kröflu, það er að segja útsala í Veiðibúðinni Kröflu að Höfðabakka 3. Allar vörur í versluninni eru á útsölu og afslátturinn er 10-60%.

    ,,Það er greinilega að koma veiðihugur í menn og við erum núna að rýma til fyrir nýjum vörum sem við fáum í vor. Það er hægt að gera frábær kaup hjá okkur og nú komum við til móts við veiðimenn og erum í fyrsta skipti á Kröflugosi með mjög góðan afslátt af öllum vinsælu Kröfluflugunum sem fást hvergi annars staðar en hjá okkur," segir Stefán Kristjánsson hjá Veiðibúðinni Kröflu.

    Á útsölunni eru í boði vel útilátin box með hinum ýmsu flugum og er þá afslátturinn allt að 30%. Þá er mikill afsláttur af taumaefni og öllu smádóti og góður afsláttur af vöðlum, vöðluskóm, stöngum og hjólum og bara öllu því sem menn þurfa í veiðitúrinn.

    Fluguboxin eru glæsileg og á frábæru verði. Hægt er að fá nöfn veiðimanna eða myndir áletruð á boxin.

    Fluguboxin eru glæsileg og á frábæru verði. Hægt er að fá nöfn veiðimanna eða myndir áletruð á boxin.

    Opið er í Kröflu frá klukkan 11 til 18 virka daga, 11 til 17 á laugardögum og 13 til 17 á sunnudögum á meðan á Kröflugosinu stendur.

    Sími 587-9500.

    e-mail - [email protected]

    Fyrstur kemur fyrstur fær.

2 Hlutir

© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík