Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

Monthly Archives: July 2011

  • Kjartan fékk Maríulaxinn á gulu Kröfluna

    Kjartan Gylfason með Maríulaxinn í gær sem var 12 pund og tók gula Kröflu.

    Kjartan Gylfason með Maríulaxinn í gær sem var 12 pund og tók gula Kröflu.

    Veiði er örlítið að glæðast í Húseyjarkvísl og hefur orðið vart við aukna göngu fiska í ána. Í gær hóf nýtt holl veiðar í ánni og komu tveir laxar á land á fyrstu vaktinni í gær. Þar af var annar fiksurinn mjög fallegur 86 cm 12 punda lax sem Kjartan Gylfason veiddi á gula Kröflu.

    Í morgun var leiðindaveður í Skagafirði og hamlaði mikið rok veiðunum. Um miðjan dag í dag hafði vind lægt verulega og veiðimenn voru bjartsýnir á framhaldið.

    Mikil veiði hefur verið í Selá í Vopnafirði og hafa Kröfluflugur verið að gefa góða veiði þar eystra. Þar eru veiðimenn einnig að ná í Maríulaxa eins og sjá má á mynd með þessari frétt.

    Reimonda frá Ítalíu með glæsilegan lax úr Selá. Hún fékk meðal annars fjóra laxa á Kolskegg og tvo á Iðu.

    Reimonda frá Ítalíu með glæsilegan lax úr Selá. Hún fékk meðal annars fjóra laxa á Kolskegg og tvo á Iðu.

    Reto Gmur frá Sviss með Maríulaxinn sinn sem tók rauða Kröflu í Fossinum í Selá.

    Reto Gmur frá Sviss með Maríulaxinn sinn sem tók rauða Kröflu í Fossinum í Selá.

  • Rosaleg ganga í Sogið og góð veiði á Selfossi

    Skröggur gaf vel í Soginu um liðna helgi og ekki í fyrsta skipti. Þett er einn af löxunum 8 sem holl um síðustu helgi náði á land.

    Skröggur gaf vel í Soginu um liðna helgi og ekki í fyrsta skipti. Þett er einn af löxunum 8 sem holl um síðustu helgi náði á land.

    ,,Þetta var rosaleg taka og ég hef aldrei áður séð magnaðri töku hjá laxi. Hann kom upp og sótti Kolskegginn með þvílíkum látum og hreinsaði sig síðan i beinu framhaldi. Þetta var hrikaleg sjón sem ég mun aldrei gleyma enda var laxinn mjög stór," sagði Þórir Traudstason en hann var ásamt félögum sínum við veiðar í Soginu um liðna helgi á Alviðru svæðinu.

    Það var rosaleg ganga í Sogið þessa helgi og fiskur alls staðar. Þórir setti í þennan risafisk á Öldunni við brúna við Þrastarlund og við tók rosaleg barátta í 20 mínútur en þá sleit laxinn. ,,Það er erfitt að segja til um hve stór þessi fiskur var en hann var örugglega um meterinn," sagði Þórir.

    Þeir félagarnir settu í um 30 laxa þessa helgi en takan var afar grönn og misstu þeir mjög marga. Aðeins náðu þeir 8 löxum á land. Allir komu laxarnir á Kröfluflugur en flestir tóku Skrögg. Sogið er því dottið í gírinn og verður fróðlegt að fylgjast með gangi mála þar á næstunni.

    Mikil veiði hefur verið undanfarna daga í Ölfusá við Selfoss. Ljóst er að mikil ganga kom í ána um liðna helgi og víst að veiðimenn á veiðisvæðum á vatnasvæði Hvítár hugsa sér gott til glóðarinnar. Við flytjum ykkur nýjar fréttir af svæðinu ásamt myndum eftir verslunarmannahelgina.

  • Tveir fyrstu laxar sumarsins í Þrastarlundi tóku báðir Kolskegg í gær

    Tveir fyrstu laxarnir sem komu á land í Soginu við Þrastarlund. Báðir tóku Kolskegg með miklum látum.

    Tveir fyrstu laxarnir sem komu á land í Soginu við Þrastarlund. Báðir tóku Kolskegg með miklum látum.

    Tveir fyrstu laxar sumarsins veiddust í gær á svæðinu við Þrastarlund í Soginu. Ekki var sjáanlegur mikill lax í Þrastarlundi í gær en báðir laxarnir komu á land um morguninn.

    ,,Aðstæður til veiða voru frekar erfiðar, mikil birta og nánast stafalogn. Ég ákvað að byrja með Kolskegg og það var strax í þriðja kasti sem hann var tekinn af miklum áhuga. Reyndar var áhuginn svo mikill að Kolskeggurinn var magagleyptur," sagði Guðjón Gunnar Ögmundsson í gær.

    Félagi hans fór með Kolskegginn skömmu síðar og eftir nokkur köst kom lax með miklum látum af fimm metra færi og negldi Kolskegginn með miklum látum. Laxarnir voru báðir grálúsugir, 6 og 7 pund. Skömmu eftir að sá síðari var kominn á land sást lax stökkva í Kúagilinu.

    Við minnum veiðimenn á að Kolskeggur og aðrar Kröfluflugur eins og þær eiga að vera fást einungis í Veiðibúðinni Kröflu Höfðabakka 3. Við vörum veiðimenn við lélegum eftirlíkingum sem eru til sölu á einhverjum stöðum og oftar en ekki undir fölskum nöfnum.

    Báðir laxarnir sem komu á land í Þrastarlundi í gær voru grálúsugir eins og sjá má á þessari mynd..

    Báðir laxarnir sem komu á land í Þrastarlundi í gær voru grálúsugir eins og sjá má á þessari mynd.

  • Kröfluflugur gefa góða veiði í Selá - 6 af 12 í Hítará í gær á Kröfluflugur

    Við höfum frétt af mörgum veiðimönnum sem hafa fengið fallega og góða veiði á Kröfluflugur undanfarna daga. Mikil laxgengd er þessa dagana í Selá í Vopnafirði og þar voru veiðimenn að setja í fallega laxa á Kröfluflugur.

    Lou Maroun með fallegan lúsugan lax úr Selá sem tók Grænfriðung.

    Lou Maroun með fallegan lúsugan tveggja ára lax úr Selá.

    Við fréttum til að mynda af konu frá Ítalíu sem veiddi 4 laxa á Kolskegg í gær og missti tvo á Iðu. Annar veiðimaður, Lou Maroun frá Bandaríkjunum, veiddi einnig vel og fékk meðal annars glæsilegan tveggja ára fisk á Grænfriðung og var sá fiskur í kringum 90 cm langur. Maroun veiddi fiskinn í Fossinum. Þá fréttum við af veiðimanni sem fékk Maríulaxinn sinn á Kolskegg á dögunum og var laxinn 80 cm langur.

    Aðeins er að lifna yfir veiðini í Hítará en ennþá vantar þó alvöru göngur í ána. Hollið sem var að veiðum í  gær veiddi 12 laxa og kom helmingur þeirra á Kröfluflugur. Laxarnir sex tóku Kröflu Eld, rauða Kröflu, gula Kröflu, Skrögg, Iðu og Kolskegg. Að auki misstu veiðimenn marga fiska en tökur voru fremur grannar í gær.

    Við minnum veiðimenn á að Kröfluflugurnar fást aðeins í Veiðibúðinni Krafla Höfðabakka 1.

    Hjördís með Maríulaxinn sinn úr Selá á dögunum. Laxinn var 80 cm og tók Kolskegg.

    Ágústa Dröfn með Maríulaxinn sinn úr Selá á dögunum. Laxinn var 80 cm og tók Kolskegg á Fossbreiðunni.

    Lou Maroun með laxinn glæsilega sem tók Grænfr

    Lou Maroun með laxinn glæsilega sem tók Grænfriðung.

Hlutur 1 til 4 af 9

Síða:
  1. 1
  2. 2
  3. 3
© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík