Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

Monthly Archives: August 2013

  • Kröfluflugurnar lang sterkasta agnið á Iðu í sumar - fín veiði flesta daga

    Jón Hilmarsson með 13 punda lúsugan hæng á Iðunni sem tók Kröflufluguna Ólsen Ólsen

    Jón Hilmarsson með 13 punda lúsugan hæng á Iðunni sem tók Kröflufluguna Ólsen Ólsen

    Veiði við Iðu í Biskupstungum hefur gengið vel í sumar en í fyrradag voru skráðir 229 laxar í veiðibókina í veiðihúsinu. Suma daga hefur veiði verið mjög góð en síðan hafa komið slakir dagar inn á milli. Yfirleitt veiða hollin einn dag í senn við Iðu og besti dagurinn í sumar var þegar 28 laxar komu á land og þeir tóku allir Kröfluflugur.

    Kröfluflugurnar hafa í gegnum árin verið áberandi besta agnið við Iðu þegar flugur eru annars vegar og engin undantekning er þar á í sumar. Af þessum 229 löxum sem eru í bókinni hafa rúmlega 80 laxar fengist á Kröfluflugurnar en rúmlega 30 laxar á aðrar flugur. Besta flugan í sumar er Krafla Orange með 22 laxa en síðan koma Kolskeggur með 17 laxa og Krafla rauð með 15 laxa. Snælda hefur gefið 14 laxa og Frances 7 laxa. Rúmlega 80 laxar hafa veiðst á maðk og spón.

    Ef veiðimenn eru á leið á Iðuna ættu þeir ekki að sleppa því að kíkja við í Veiðibúðina Kröflu í Höfðabakka 3 því Kröfluflugurnar fá þeir hvergi annars staðar.

    Krafla Orange er nauðsynlegt agn við Iðu. Hún er aflahæsta flugan á þeim slóðum í sumar.

    Krafla Orange er nauðsynlegt agn við Iðu. Hún er aflahæsta flugan á þeim slóðum í sumar.

  • Ævintýraleg barátta í niða myrkri í klukkutíma

    Birgir Már Ragnarsson með laxinn stóra sem tók Kolskegg. Laxinn var 106 cm langur og á milli 24 og 25 pund.

    Birgir Már Ragnarsson með laxinn stóra sem tók Kolskegg. Laxinn var 106 cm langur og á milli 24 og 25 pund.

    ,,Þetta var svakaleg barátta. Aðstæður allar mjög erfiðar og flugan lítil og græjurnar nettar. Engu að síður tókst þetta og laxinn er glæsilegur," sagði Hilmir Víglundsson leiðsögumaður við Hofsá í Vopnafirði í samtali við Krafla.is

    Birgir Már Ragnarsson veiddi á dögunum sannkallaðan stórlax í Hofsá í Vopnafirði. Laxinn var 106 cm langur og 24-25 pund að þyngd. Fiskinn veiddi Birgir á Kröflufluguna Kolskegg og er þetta stærsti fiskur sem veiðst hefur í Hofsá í mörg ár og einn stærsti laxinn sem veiðst hefur á þessu sumri hér á landi. Kolskeggurinn sem laxinn tók var í formi lítillar gárutúpu og krókurinn númer 14 af WMC gerð.

    ,,Laxinn tók klukkan hálf tíu og við vorum í klukkutíma að landa honum. Seinni helmingur viðureignarinnar fór fram í niðamyrkri og allar aðstæður voru mjög erfiðar," sagði Hilmir ennfremur en laxinn tók í Hagabrekkuhyl á fyrsta svæði Hofsár.

    Við minnum veiðimenn á að Kolskegg og aðrar Kröfluflugur er einungis hægt að fá í Veiðibúðinni Kröflu að Höfðabakka 3. Ef veiðimenn rekast á Kolskegg eða aðrar Kröfluflugur í öðrum veiðibúðum eru það afar lélegar eftirlíkingar að okkar mati sem við tökum enga ábyrgð á. Samkvæmt vörumerkjalögum er öðrum verslunum óheimilt að selja Kröfluflugur.

    Kolskeggur er orðin ein skæðasta fluga landsins og hefur gefið mönnum ótrúlega veiði í sumar.

    Kolskeggur sem gárutúp. Kolskeggur er orðin ein skæðasta fluga landsins og hefur gefið mönnum ótrúlega veiði í sumar.

  • Svakaleg dagsveiði í Soginu og Eystri Rangá þar sem Kröfluflugur komu mikið við sögu

    Glæsilegur lax úr Soginu. Þessi tók Kröflu orange.

    Glæsilegur lax úr Soginu. Þessi tók Kröflu orange.

    ,,Þetta er eitt mesta ef ekki mesta ævintýri sem ég hef lent í um dagana og þeir eru nú orðnir nokkuð margir. Þetta var alveg rosaleg veiði og það var mjög mikið af laxi á svæðinu í Ásgarði," sagði Sigurður Vilhjálmsson í samtali við Krafla.is en hann lenti í sannkallaðri mokveiði á Ásgarðssvæðinu í Soginu um síðustu helgi.

    ,,Við félagi minn vorum við veiðar í Ásgarði seinni part síðasta laugardags og fyrri part sunnudags. Á þessum tveimur vöktum settum við í 19 laxa og lönduðum 14 þeirra. Iða og Kolskeggur voru að gefa okkur stórkostlega veiði og sama má segja um marga liti af Kröflunum. Við vorum einnig að missa marga laxa og það var mikið fjör þessa tvo hálfu daga," sagði Sigurður.

    Sogið virðist vera að smella í gang og veiðimenn hafa verið að gera góða veiði í Bíldsfelli síðustu dagana. ,,Ég varð mikið var við lax á Ásgarði um daginn og flugurnar frá Kröflu voru að svínvirka. Ég er mjög hrifinn af þessum flugum og er nær eingöngu farinn að nota flugurnar frá Kröflu. Þær eru bæði sterkar og þrælveiðnar," sagði Sigurður.

    Annað ævintýri í Eystri Rangá

    Eftir mokveiðina í Ásgarði héldu þeir félagar í Eystri Rangá og drógu þar 5 svæðið Á einum degi settu þeir í 27 laxa og lönduðu megninu af þeim. ,,Þetta var alveg stórkostleg veiði. Og enn voru það Kröfluflugurnar sem voru að gefa vel. Iðan og Kolskeggur og ég fullyrði að Iðan er algjört drápstól. Í hvert einasta skipti sem ég reyni þessa flugu gefur hún mér góða veiði," sagði Sigurður.

    Við minnum veiðimenn á að Kolskeggur, Iða og allar Kröfluflugurnar fást aðeins í Veiðibúðinni Kröflu, Höfðabakka 3. Þar er boðið upp á langmesta úrval landsins af íslenskum flugum og að mati fjölmargra veiðimanna er þar að finna fallegasta og stærsta fluguborð landsins.

3 Hlutir

© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík