Glæsilegar nýjar flugur á Krafla.is- örsmáar keilutúpur og Long Wing túpur sem laxinn stenst ekki eins og dæmin sanna
This entry was posted on 14. June 2009
.Við erum alltaf að bæta við úrvalið í netverslun okkar og nú hafa bæst við ótrúlega flottar flugur á Krafla.is Annars vegar eru það plasttúpur með löngum væng, Long Wing túpur sem við fengum sl. sumar og hins vegar örlitlar tungsten Kröflu keilutúpur í sjö litum sem við nefnum Micro og Nano og komu í netverslun okkar sl. haust Við fullyrðum að hér er um hnýtingu á heimsmælikvarða að ræða og árangurinn er frábær.
Long Wing túpurnar fengum við fyrir síðustu vertíð og þær voru strax að virka. Við seldum veiðimönnum flugurnar sem reyndu fyrir sér í Langá á Mýrum og árangurinn var ævintýralegur. Hafsteinn Orri Yngvason í Langá setti í lax í Langá þegar hann reyndi Kolskegginn í fyrsta kasti í Langá og fékk síðan á hana fjölmarga laxa sl. sumar. Annar viðskiptavinur okkar keypti Kolskegg Long Wing túpuna hjá okkur og fékk á hana 9 laxa í Langá í júlí í fyrra. Þessi veiðimaður, sem við ræðum við fljótlega hér á Krafla.is, fékk Maríulaxinn á Kolskegginn í Langánni og marga laxa í kjölfarið. Skyldi engum koma á óvart að þessi ágæti veiðimaður
er í dag forfallinn fluguveiðimaður og mikill aðdáandi Kolskeggs. Einnig höfum við heyrt sögur af magnaðri veiði á Skrögg og Iðu sem einnig fást í plasttúpu með löngum væng. Skröggurinn og Iðan voru til að mynda að gefa góða veiði í Norðlingafljóti í fyrra.
Og hér kemur ein saga af mörgum sem við höfum heyrt af Long Wing túpunum: ,,Ég var ekkert alltof bjartsýnn þegar ég ók upp Norðurárdalinn. Einn af síðustu dögunum í ágúst var runninn upp og vatnið í ánni oft verið meira. Ég átti því ekki von á líflegri töku. Þegar ég kom að ánni við Símastreng ákvað ég að setja Kolskegg Long Wing túpuna á tauminn en hana hafði ég keypt á Krafla.is nokkrum dögum áður. Ég gæti skrifað langa grein hér um þennan morgun. Ég fékk sjö laxa á Kolskegginn og margir laxar ,,hittu" hann aldrei í mörgum tilraunum sínum. Eftir þennan eftirminnilegasta morgun minn við Norðurá mun Kolskeggur alltaf skipa ákverðinn sess í mínu fluguboxi."
Long Wing plasttúpurnar okkar eru skemmtilegar hvað það varðar að hægt er að nota þær bæði sem venjulegar túpur og gárutúpur. Göt eru fyrir hvora aðferðina sem menn kjósa sér.
Veiðimenn sem séð hafa Kröflutúpurnar okkar í Micro og Nano útgáfunni hafa verið yfir sig hrifnir. Fjölmargir veiðimenn sem reynt hafa þessa litlu gullmola hafa náð á þær mikilli veiði. Þessar örsmáu keilutúpur, þar sem hnýtingarflöturinn er 2 og 3 millimetrar, voru að gefa mönnum magnaða veiði undir lok vertíðar í fyrra. Þetta eru skæð vopn. Og tungsten keilan gefur mikla þyngd og mikinn sökkhraða. Við vorum við veiðar í Norðurá í byrjun september í fyrra með tveimur reyndum görpum í árnefnd Norðurár, Gunnari Erni Péturssyni og Jóni G. Baldvinssyni. Fengu félagarnir fjóra eða fimm laxa á litlu Kröflutúpurnar á skömmum tima í Skarðshamrafljóti í afar litlu og erfiðu vatni. Og laxarnir tóku Kröflurnar af slíkum áhuga að hvorugur missti lax.