Stórbrotið veiðisvæði Jöklu - 10 af 17 löxum á Kolskegg, rosalegar tökur og rígvænar bleikjur
This entry was posted on 13. August 2009
.Veiðimenn sem voru við veiðar í einn og hálfan dag á Jöklusvæðinu hans Þrastar Elliðasonar fengu 17 laxa og misstu sex. Að auki frengu þessar aflaklær sem kenna sig við Mokveiðifélagið 8 vænar bleikjur og sjóbirtinga af fallegri gerðinni.
,,Þetta var í einu orði sagt stórkostlegt. Þetta veiðisvæði er með því flottasta hér á landi ef ekki það fallegasta. Og ekki skemmdi fyrir að við veiddum mjög vel og í raun mun betur en við áttum von á," sagði Hörður Hafsteinsson, einn veiðimannanna í samtali við Krafla.is
,,Og enn einu sinni var Kolskeggurinn í aðalhlutverkinu. Af þessum 17 löxum sem við lönduðum komu 10 á Kolskegg. Og tökurnar voru svo rosalegar að ég hef aldrei séð annað eins. Laxarnir komu á eftir Kolskeggnum niður ána og einn tók hana á lofti þegar hún var að lenda á vatninu. Ég á í raun ekki nægilega sterk lýsingarorð til að lýsa þessum tökum. Ég hef aldrei átt flugu fyr sem virðist fara eins mikið í taugarnar á löxum. Og bleikjurnar voru alveg jafn vitlausar í Kolskegginn," sagði Hörður sem einnig fékk laxa á svarta Kröflu og Kröflu Eld keilutúpur.
Jöklusvæðið samanstendur af Jöklu og hliðarám hennar sem eru Laxá og Kaldá og svo Fögruhlíðará. Vatnsmagn er misjafnt í þessum ám en í öllum þeirra eru mjög margir glæsilegir veiðistaðir og alveg ljóst að þetta er framtíðar laxveiðisvæði. ,,Þetta svæði er komið til að vera hjá okkur félögunum og við munum reyna að komast þarna til veiða á hverju sumri eftir þessa veiðiferð," sagði Hörður ennfremur.
Sjá má frétt og tæplega 200 myndir úr veiðitúrnum á vef Mokveiðifélagsins sen slóðin er www.veidimenn.com