Allir flugufiskarnir á Skrögg, Kolskegg og ýmsar Kröflur í Hólsá - vatnavextir í Norðurá
This entry was posted on 21. August 2009
.,,Þetta var skemmtileg veiði og ég fékk alla 4 laxana mína á Skrögginn. Þetta voru mjög skemmtilegar tökur og greinilegt að Skröggurinn gefur Kolskeggi ekkert eftir. Þetta er greinilega hörkugóð fluga," sagði Þorsteinn Guðmundsson í samtali við Krafla.is í gær en um síðustu helgi var hann ásamt félögum sínum í Mokveiðifélaginu við veiðar vesturbakka Hólsár.
Hollið fékk 32 laxa. Þetta var fjölskylduferð með konur og börn og um helmingur laxanna kom á flugur. Flestir á Skrögg og Kolskegg en einig margir á Kröflutúpur í ýmsum litum, orange, rauða og Kröflu Eld. Þess má geta að holli'ð á undan þeim félögum fékk engan lax.
Norðurá er að skríða í 2000 laxa og er það aðeins slakari veiði en í fyrra á sama tíma svo munar um 400 löxum. Í fyrra veiddust rúmlega 3000 laxar. Síðasta holl í Norðurá veiddi 61 lax. Mikil rigning var á Holtavörðuheiði í gærkvöldi og Norðurá var farin að taka lit. Mjög líklegt að áin verði mórauð og óveiðandi í dag föstudag enda áin vaxið hratt síðustu klukkustundir.