Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

Laxar á Kröflur og Kolskegg í Aðaldalnum - Norðurá lokað í flóði eftir að vatnsmagn sexfaldaðist í gær - fréttir héðan og þaðan

Rígvænn hængur að öðlast frelsið á ný eftir snarpa og erfiða viðureign við veiðimann í Húseyjarkvísl

Rígvænn hængur að öðlast frelsið á ný eftir snarpa og erfiða viðureign við veiðimann í Húseyjarkvísl. Þessi hængur var 90 cm og tók Skrögg Long Wing plasttúpu með miklum látum.

Veiði lauk í Norðurá í gærkvöld og þá skildi þessi mikla perla,  sem verið hefur vatnslítil og vatnslaus megnið af sumrinu, við síðustu veiðimenn sumarsins í lituðu flóðvatni. Var áin orðin foráttumikil og mórauð áður en veiðitíma lauk í gær. Lokatölur úr Norðurá eru mjög nálægt 2408 löxum sem er nokkru minni veiði en í fyrra en samt merkilega góð og í raun frábær veiði miðað við aðstæður í sumar.

Svo miklir voru vatnavextir í Norðurá í gær eftir að fór að rigna að vatnsmagn árinnar sexfaldaðist á einum sólarhring. Rennsli Norðurár var um 6 rúmmetrar á miðnætti í gær en í þessum skrifuðu orðum sólarhring síðar er rennsli Norðurár 36 rúmmetrar. Sannarlega grátlegt að loksins komi ákjósanlegt vatn í ána þegar veiðitíma er lokið.Breyta

Fram á síðustu veiðidaga var nýr lax að ganga í Norðurá. Til að mynda veiddist 4 punda nýgengin hrygna í Krossholu við Laxfoss þann 7. september. Svo silfurgljáandi var laxinn að veiðimenn leituðu að lús en fundu ekki. Þá sáu veiðimenn nýgenginn og bjartan lax stökkva í Neðristreng á svæðinu í Munaðarnesi sama dag og daginn eftir. Einnig varð vart við hóp nýrra laxa í Myrkhyl.

Við Norðurá 7. september sl. Hér er allt í keng. Nýgenginn hrygna hefur neglt rauða Kröflu.

Við Norðurá 7. september sl. Hér er allt í keng. Nýgenginn hrygna hefur neglt rauða Kröflu í Krossholu sem er snotur strengur neðan við Laxfoss í litlu vatni.

,,Þetta var æðislegur veiðitúr. Við fengum fjóra fallega laxa á Nessvæðinu og getum ekki annað en verið ánægðir með það," sagði Stefán Hallur Jónsson í samtali við okkur á Krafla.is í gærkvöld en hann var við veiðar í Laxá í Aðaldal fyrir nokkrum dögum. ,,Heimamenn höfðu á orði að ekki væri hægt að veiða á Kröflur í Aðaldalnum en við fórum nokkuð létt með að afsanna það. Við fengum tvo laxa á blá/svarta tommulanga Kröflutúpu og tveir laxanna komu á Kolskegg," sagði Stefán Hallur.

Við höfum frétt af mjög mikilli veiði á Kröfluflugur á norðanverðu landinu í sumar. Og ekki síður á norðaustanverðu landinu. Þannig höfum við heyrt miklar sögur frá mörgum veiðimönnum sem verið hafa við veiðar í Hölkná og Hafralónsá svo ekki sé minnst á Selá.

Og hér er hrygnan nýgengna komin á land eftir snarpa viðureign.

Og hér er hrygnan netta og nýgengna komin á land eftir snarpa viðureign.

Hollið sem tók við í Stóru Laxá og veiddi 6. til 8. september fékk 3 laxa en aðeins tvær stengur voru við veiðarnar. Greinilegt að lítið ef nokkuð er af laxi í Stóru Laxá þessa dagana en það kann að breytast eftir vatnavexti síðustu daga. Þegar vatn vex í Stóru Laxá og Hvítá fer allt af stað, lax fer í auknum mæli á hreyfingu af svæðum í Hvítá neðan við Skálholt. Þessi fiskur gengur um Iðusvæðið þar sem veiðimenn verða hans varir og veiða vel í skamman tíma. Og áður en menn depla auga er Iðusvæðið tómt, fisklaust þrátt fyrir góðar aðstæður. Þá er von á góðum dögum í Stóru Laxá í framhaldinu.

Eftir að allt fór í flóð og grugg á Iðunni um kvöldmatarleytið í kvöld má loksins búast við fjörugum dögum í Stóru Laxá þegar vatnavöxtum linnir og  sjatnar í Stóru Laxá. Síðustu dagar hafa verið mjög daprir á svæði 1 og 2 í Stóru Laxá og veiðimenn sem voru á þessum svæðum um síðustu helgi fóru vonsviknir heim á leið: ,, Við veiddum svæðin samviskulega, notuðum margar flugur í öllum stærðum og spúninn í lokin á hverjum veiðistaðnum af öðrum. Uppskeran var aðeins tveir laxar sem eiga ættir að rekja til Tungufljóts og eiga ekkert skilt við stofninn í Stóru Laxá. Vatnið var afskaplega lítið og svæðin nánast steindauð og eiginlega hvergi líf að sjá," sagði veiðimaður við Krafla.is sem var í umræddu holli.

Leave a Reply
© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík