Ágætt kropp í Húseyjarkvísl - Kröfluflugurnar stóðu sig frábærlega í birtingnum
This entry was posted on 2. April 2011
.,,Þetta hefur verið ágætt kropp en oft höfum við veitt miklu meira í Húseyjarkvísl. Við fengum nokkra mjög skemmtilega fiska en enga mjög stóra, það var enginn yfir 10 pundum," sagði Sævar Örn Hafsteinsson en félagar í Mokveiðifélaginu opnuðu Húseyjarkvísl um helgina.
Það viðraði sæmilega á föstudeginum, 1. apríl, en síðan fór kólnandi. ,,Enn og aftur voru Kröfluflugurnar að virka frábærlega. Við fengum fiska á Grýlu, Iðu, Kolskegg, bláa Kröflu, Skrögg og Krókinn svo einhverjar séu nefndar," sagði Sævar Örn.
Víða hefur sjóbirtingsveiði verið með miklum ágætum og nokkuð um fallega geldfiska. Þar má nefna Tungufljót og Vatnamótin. Vonandi hafa veiðimenn verið duglegir við að sleppa veiddum fiskum enda engin ástæða til að hirða fiska sem veiðast í vorveiði.