Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

Opið til klukkan fjögur í dag - önnur sending af Echo stöngum væntanleg

Stangaveggurinn með Kröfluerlda í bakgrunni hefur vakið mikla athygli veiðimanna. Echo stangirnar eru hágæða framleiðsla á hreint frábæru verði.

Stangaveggurinn með Kröfluelda í bakgrunni hefur vakið mikla athygli veiðimanna. Echo stangirnar eru hágæða framleiðsla á hreint frábæru verði. 

Echo stangirnar hafa vakið mikla athygli hjá okkur það sem af er sumri og ekki síst verðið sem er viðráðanlegt fyrir alla. Úrvalið af Echo stöngunum er mikið, lengdir frá 6,6 fetum til 15 feta og allir veiðimenn ættu að geta fundið frábæra stöng við sitt hæfi.

Viðtökur veiðimanna hafa verið á einn veg og önnur sending af Echo stöngunum er væntanleg fljótlega. Miðað við mikil gæði Echo stanganna er verðið ótrúlega gott og hefur komið mörgum á óvart. Echo stangirnar eru fyrir alla veiðimenn en ekki einungis hátekjufólk.

Flugur okkur hafa rokselst það sem af er sumri og margar spennandi nýungar í 8 metra löngu fluguborði okkar þegar farnar að gera það gott.

Við erum búin að opna í dag og Veiðibúðin Krafla Höfðabakka 3 verður opin til fjögur í dag. Við erum með heitt á könnunni og bjóðum alla veiðimenn velkomna sem vilja kíkja til okkar.

Leave a Reply
© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík