Norðurá er að skríða í 200 laxa
This entry was posted on 24. June 2011
.Síðasta holl í Norðurá fékk 25-30 laxa og áin er að skríða í 200 laxa. Veiðimenn sem luku veiðum á hádegi í dag, föstudag, sögðu ekki mikinn fisk í ánni en alls voru 30 laxar gengnir upp fyrir teljarann í Glanna í morgun.
Enn er því beðið eftir smálaxagöngum í Norðurá en þess verður örugglega ekki langt að bíða að áin fyllist af fiski. Við höfum heyrt af líflegri veiði í Straumunum, ármótum Norðurár og Hvítár, og eins af einhverri för laxa á svæðinu við Munaðarnes.
,,Við vorum með fjórar stangir á svæðinu við Laxfoss í morgun en það komu aðeins tveir laxar á land allan morguninn," sagði einn veiðimanna sem var að koma úr Norðurá. Hann fékk fjóra laxa og þar af tvo á Iðu og rauða Kröflu.