Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

4 laxar komnir á Skrögginn í Húseyjarkvísl

Þorsteinn Frímann Guðmundsson með 17 punda hænginn sem tók Skrögg keilutúpu í Húseyjarkvísl í gær.

Þorsteinn Frímann Guðmundsson með 17 punda hænginn sem tók Skrögg keilutúpu í Húseyjarkvísl í gær.

Félagar í Mokveiðifélaginu eru við veiðar í Húseyjarkvísl þessa stundina og fram til hádegis á föstudag. Í gærkvöldi voru þeir komnir með fjóra væna laxa þrátt fyrir mikinn kulda, 5 stiga hita og norðannepju. Allir fiskarnir, 10 til 17 pund tóku Skrögg keilutúpu en hún fæst einungis hjá okkur á Krafla.is og í Veiðibúðinni Kröflu Höfðabkka 3.

Opnunarhollið í Húseyjarkvísl fékk 5 laxa en hollið sem nú er við veiðar í ánni er holl númer tvö. ,,Þetta hefur verið mjög erfitt vegna kulda og norðannepjunnar. Við eru  komnir með 4 væna laxa og svo misstum við einn. Það er eitthvað hrafl af fiski í ánni og hann er eitthvað að ganga. Það er mjög gott vatn í ánni og aðstæður allar þær bestu ef kuldinn er undanskilinn," sagði Hörður Birgir Hafsteinsson í samtali við Krafla.is fyrir stundu.

Hörður Birgir var þá staddur neðan við Varmahlíð á silungasvæðinu en þar fengust tveir laxanna í gær. Þorsteinn Frímnn Gunnlaugsson fékk stærsta fiskinn sem kominn er á land, í það minnsta 17 punda  fisk sem var 92 cm langur og lúsugur hængur.

Leave a Reply
© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík