Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

Ódýrasti stangarpakkinn á aðeins 14.900 krónur - Frábærar jólagjafir í Kröflu Höfðabakka

Ódýrasti stangarpakkinn á markaðnaum í dag? Mjög góð flugustöng, hjól, flugulína og 6 flugur í boxi á aðeins 14.900 krónur. Frábær jólagjöf fyrir fluguveiðimenn.

Ódýrasti stangarpakkinn á markaðnaum í dag? Mjög góð flugustöng, hjól, flugulína og 6 flugur í boxi á aðeins 14.900 krónur. Frábær jólagjöf fyrir fluguveiðimenn.

Í veiðibúðinni Kröflu að Höfðabakka 3 eru meðal annars í boði frábærir stangarpakkar fyrir jólin. Eru pakkarnir á ýmsum verðum en sá ódýrasti er á aðeins 14.900 krónur. Höfum við ekki séð viðlíka stangarpakka á betra verði annars staðar.

Í þessum ódýra pakka er 8,6 feta flugustöng fyrir línu 5, gott fluguhjól með diskabremsu og aukaspólu, flotlínu, undirlínu, taum og að auki eru í pakkanum sex flugur í boxi. Þetta eru að okkar mati ein bestu kaupin sem hægt er að gera fyrir þessi jól þegar jólagjafir fyrir veiðimenn eru annars vegar.

Í jólapakka 2 hjá okkur er mjög góð 9 feta flugustöng, Echo Solo  fyrir línu númer 5, 6 eða 8. Vandað fluguhjól frá Echo með aukaspólu, undirlínu, taum og 6 flugur í boxi. Þessi pakki kostar aðeins 24.900 krónur. Frábær jólagjöf og Tim Rajeff, eigandi Echo og hönnuður, segir þetta vera bestu flugustöngina í þessum verðflokki sem völ er á í dag. Lífstíðarábyrgð er á stönginni.

Jólapakki 2. Frábær flugustöng frá Echo, hjá frá Echo, flugulína frá Echo og 6 flugur í boxi.

Jólapakki 2. Frábær flugustöng frá Echo, hjól frá Echo, flugulína frá Echo og 6 flugur í boxi.

Jólapakki 3. Echo Edge er ein besta 9 feta stöngin frá Echo. Mjög gott hjól frá Echo ásamt flotlínu og undirlínu og taumi og 6 flugum í boxi.

Jólapakki 3. Echo Edge er ein besta 9 feta stöngin frá Echo. Mjög gott hjól frá Echo ásamt flotlínu og undirlínu og taumi og 6 flugum í boxi.

Í jólapakka 3 hjá Kröflu er 9 feta Echo Edge einhenda fyrir línu 5 eða 6 sem er ein besta einhendan frá Echo í dag. Í pakkanum er einnig mjög vandað hjól frá Echo, aukaspóla, flotlína frá Echo, undirlína, taumurt og 6 flugur í boxi. Hér erum við að tala um mjög vandaðan pakka sem kostar aðeins 59.900 krónur. Lífstíðarábyrgð er á stönginni.

Í öllum stangarpökkunum er búið að setja undirlínu, flugulínu og taum á hjólið og allt tilbúið fyrir veiðitúrinn.

Í Veiðibúðinni Kröflu er opið frá 11 til 18 á virkum dögum og laugardögum til jóla.

Leave a Reply
© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík