Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

Menn trúa vart sínum eigin augum - fluguveiðipakki með öllu á aðeins 14.900!!!

Glæsilegur fluguveiðipakki frá Echo.

Glæsilegur fluguveiðipakki frá Echo.

Við í Veiðibúðinni Kröflu í Höfðabkka 3 bjóðum upp á mikið úrval af fluguveiðipökkum fyrir þessi jól. Ódýrasti pakkinn kostar aðeins 14.900 krónur og er enn til hjá okkur. Í pakkanum er mjög góð 8,6 feta White River flugustöng fyrir línu nr. 5, fluguhjól með aukaspólu, undirlína og flotlína ásamt taum og 6 flugur í boxi. Við höfum ekki enn rekist á ódýrari fluguveiðipakka eða fluguveiðisett fyrir þessi jól og höfum við þó víða farið. Þetta er frábær pakki fyrir byrjendur eða þá sem eru nýbyrjaðir í fluguveiðinni

Hjá Kröflu fást einnig fleiri útgáfur af fluguveiðipökkum og er hægt að gera hreint stórkostleg kaup. Þar má nefna pakka sem kostar 24.900 en í honum eru Echo 9 feta flugustöng, Echo fluguhjól með aukaspólu, undirlínu og flotlínu frá Echo og 6 flugur í boxi. Mjög vandaður pakki á frábæru verði.

Við erum einnig með mörg önnur tilboð. Þar má nefna vöðlupakka en í honum eru mjög vandaðar öndunarvöðlur með rennilás og mjög góðir vöðluskór. Þeir sem skella sér á svona pakka fá skóna nánast frítt með til jóla.

Ódýrasti fluguveiðipakkinn á markaðnum í dag? Við höfum hvergi séð ódýrari pakka. Þessi kostar aðeins 14.900 krónur.

Ódýrasti fluguveiðipakkinn á markaðnum í dag? Við höfum hvergi séð ódýrari pakka. Þessi kostar aðeins 14.900 krónur.

Við ákváðum nýverið að bjóða félagsmönnum og konum í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur 10% afslátt af flugum og fluguboxum í Veiðibúðinni Kröflu fram til jóla. Við erum með langmesta úrval landsins af íslenskum flugum og mjög mikið úrval af fluguboxum á verði frá 650 krónum til 23 þúsund krónur. Um er að ræða flugubox úr plasti og tré og gröfum við nöfn, lógo eða myndir á boxin.

Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi og hjá okkur þarf jólagjöf sem gleður ekki að kosta mikið.

Leave a Reply
© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík