Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

Gos hafið í Kröflu - Frábærar vörur á frábæru verði og hægt að gera ótrúlega góð kaup - Opið um helgina

Mjög góður vatnsheldur vöðlujakki. Þessi jakki er í boði á Kröflugosinu á aðeins 16.500 krónur!! Stengur eru í boði frá 9.500 krónum og fluguhjól og línur vel undir 10 þúsund krónum. Allt eru þetta mjög góðar merkjavörur.

Mjög góður vatnsheldur vöðlujakki. Þessi jakki er í boði á Kröflugosinu á aðeins 16.500 krónur!! Stengur eru í boði frá 9.500 krónum og fluguhjól og línur vel undir 10 þúsund krónum. Allt eru þetta mjög góðar merkjavörur.

Okkur í Veiðibúðinni Kröflu er það mikil ánægja að tilkynna að gos er hafið í Veiðibúðinni Kröflu. Kröflugosið 2012 er hafið í verslun okkar í Höfðabakka 3 en þar bjóðum við allar vörur í verslun okkar á 20 til 50% afslætti.

Ef veiðimenn skyldi vanta eitthvað gott fyrir sumarið þá er um að gera að kíkja við hjá okkur og kanna málið. Hægt er að gera mjög góð kaup en allar okkar bestu vörur eru á útsölunni þetta árið. Við rýmum fyrir nýjum vörum sem við munum bjóða upp á þegar nær dregur vori og sumri.

Við getum nefnt sem dæmi um góð kaup að hægt er að fá flugustengur frá 9.500 krónum og þá erum við að tala um mjög góðar stengur. Einnig bjóðum við mjög góð fluguhjól á innan við 10 þúsund krónur og flugulínur á verði sem ekki hafa sést áður.

Þá eru allar okkar flugur á 20-30% afslætti og við bjóðum upp á flugubox með fallegu fluguúrvali á mjög góðu verði. Hér er aðeins fátt eitt nefnt en allt það sem menn þurfa til fluguveiði er á útsölunni okkar. Við hvetjum veiðimenn til að mæta sem fyrst til okkar því ekki er um mikið magn að ræða í sumum vörutegundum og því um að gera að drífa sig og gera hreint frábær kaup.

Kröflugosið hjá okkur mun standa eitthvað fram eftir næstu viku en við reiknum með að gosið verði í rénun þegar líða tekur á næstu viku.

Leave a Reply
© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík