Lokadagur Kröflugossins á morgun laugardag - enn hægt að gera hrikalega góð kaup
This entry was posted on 23. March 2012
.Kröflugosinu 2012 lýkur í verslun okkar klukkan þrjú á morgun laugardag 24. mars. Enn er hægt að gera hrikalega góð kaup á Kröflugosinu. Þar má nefna að mjög góð tvíhenda er til sölu á rúm 20 þúsund, einhendur eru frá 7 þúsundum og fluguhjól eru enn til hjá okkur á aðeins rúmar fimm þúsund krónur. Þá eru vöðlujakkar hjá okkur í miklu úrvali og verðið er frá aðeins 16.500 krónum fyrir vatnsheldan jakka. Loks má nefna að flugur okkar verða á 20-30% afslætti til klukkan þrjú á laugardag.
Nú er stutt í að veiðitímabilið hefjist og því um að gera fyrir veiðimenn að gera frábær kaup í veiðigræjum fyrir komandi vertíð.
Við erum þegar farin að taka inn nýjar vörur fyrir sumarið og verða þar margar nýungar á ferðinni. Sumt af því má sjá nú þegar í verslun okkar að Höfðabkka 3.
Kröflugosinu 2012 lýkur sem sagt á morgun klukkan þrjú. Í dag föstudag er opið til klukkan sex og á morgun laugardag frá 11 til 15.