Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

Fluguveiðipakki með rúmlega 40% afslætti - fluguhjólið, undirlína, flotlína, auka spóla og 6 flugur ókeypis

Glæsilegur jólapakki fyrir fluguveiðimanninn frá Kröflu þar sem í raun er aðeins greitt fyrir stöngina.

Glæsilegur jólapakki fyrir fluguveiðimanninn frá Kröflu þar sem í raun er aðeins greitt fyrir stöngina.

Við viljum vekja athygli veiðimanna á því að við vorum að setja inn margar nýjar vörur í netverslun okkar hér á Krafla.is - Þar ber fyrst að nefna margar nýjar stengur frá Echo og frábærar vöðlur og skó frá AQUAZ. Þessar vörur hafa verið í mikilli notkun hérlendis undanfarin ár og reynst afar vel.

Nú þegar líða tekur að jólum viljum við vekja athygli veiðimanna á því að við erum að bjóða upp á mikið úrval af ódýrum og góðum jólagjöfum fyrir veiðimenn og við erum með mörg frábær jólatilboð í Veiðibúðinni Kröflu, Höfðabakka 3. Þar bjóðum við upp á lang mesta úrval landsins af íslenskum flugum og röðum í falleg flugubox fyrir hvern og einn.

Hvergi í veiðibúðum á Íslandi er meira úrval af íslenskum flugum en hjá okkur í Kröflubúðinni og Kröfluflugurnar fást eingöngu hjá okkur. Við erum með fjölmargar útgáfur af fluguboxum þar sem hægt er að finna eitthvað við allra hæfi. Ódýrasta fluguboxið hjá okkur inniheldur fjórar gárutúpur og kostar aðeins  1500 krónur.

Ein vinsælasta jólagjöfin hjá okkur í Kröflubúðinni eru íslensku fluguboxin okkar úr birki og mahoný þar sem við gröfum nöfn veiðimanna á boxin. Hægt er að velja um alls konar innihald af flugum í boxin og verðið er mjög gott. Þetta er mjög persónuleg gjöf og hefur algjörlega slegið í gegn hjá okkur. Sjá nánar á Krafla.is og í Veiðibúðinni Kröflu þar sem er mesta úrvalið.

Við erum með ýmsar útgáfur af jólapökkum fyrir fluguveiðimenn. Þar má nefna tvær útfærslur af fluguveiðipökkum þar sem hægt er að fá fluguhjól, undirlínu, flugulínu, aukaspólu og sex Kröfluflugur ókeypis. Aðeins er greitt fyrir verðið á flugustönginni. Þetta er án efa ein bestu tilboðin á markaðnum í dag (sjá nánar hér á Krafla.is undir flipanum Stengur og hjól og svo flugustengur). Sérstaklega þegar það er haft í huga að  í jólapökkunum okkar er 9 feta Echo flugustöng sem er í góðum gæðaflokki, góð flotlína og undirlína frá Echo, mjög gott fluguhjól frá Echo og 6 Kröfluflugur í hæsta gæðaflokki. Við erum að bjóða þessa pakka með rúmlega 40% afslætti núna fyrir jólin.

Við skorum á veiðimenn að gera samanburð á verði og gæðum.

Leave a Reply
© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík