Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

Í minningu Gríms Jónssonar

Grímur Jónsson.                                              Myndin er frá www.votnogveidi.is

Grímur Jónsson.   Myndin er frá www.votnogveidi.is

Grímur Jónsson, járnsmiður og veiðimaður er látinn.

Vinátta okkar Gríms var frekar stutt en einlæg að sama skapi. Áratugum saman áttum við stopul og frekar stutt kynni en vissum þó alltaf hvor af öðrum.

Fyrir nokkrum árum fékk ég þá hugmynd að skreyta fluguborðið í verslun okkar í Veiðibúðinni Kröflu í Höfðabakkanum með alvöru Snældum. Ég vildi gera þetta í samráði við höfundinn og hönnuðinn. Því var símtal til Gríms rökrétt framhald. Leyfið var auðfengið og þetta símtal markaði upphafið að afar traustri vináttu okkar. Ég mat það strax mikils við Grím að hann skildi leyfa mér að selja Snælduna og hann mat það afar mikils við mig að ég hafði fyrir því að spyrja um leyfi. Komu afar sterk viðbrögð hans mér reyndar í opna skjöldu. Nánar mun ég fjalla um þessi samskipti okkar og afrakstur þeirra fljótlega hér á Krafla.is

Grímur Jónsson hannaði Snælduna árið 1984. Þessa miklu aflaflugu og var hún honum afar kær eins og nærri má geta. Grímur Jónsson vandi komur sínar í verslun mína síðustu æviár sín og ég varð þess heiðurs aðnjótandi að fá að gefa honum kaffi og eiga við hann afar skemmtilegar, fróðlegar og langar samræður á kaffistofunni. Oftar en ekki bar Snælduna á góma enda lék hún oft aðalhlutverkið í fengsælum veiðiferðum Gríms. Eins og fleiri veiðimenn af sömu kynslóð var Grímur óspar að miðla af áratuga reynslu sinni af veiðiskap. Hann var alltaf tilbúinn að leiðbeina mönnum og kenna á árbakkanum og þeir eru margir veiðimennirnir sem eiga honum margt að þakka þegar fluguveiðin er annars vegar.

Mér fannst það í raun og veru mikill heiður að svo mikill veiðimaður og örlagavaldur í íslenskri fluguveiði skyldi hafa á því áhuga að heimsækja mig reglulega í mína litlu og nýju veiðibúð og veita mér leyfi til að selja Snælduna. Báðir vorum við sérstaklega ánægðir með þetta vegna þess að þar með fékk Grímur vissa upphæð af hverri seldri Snældu í Kröflubúðinni.

Þegar við hittumst voru það afar sérstakar stundir og oft fyrir margra hluta sakir. Grímur var góður vinur föður míns og hann sagði mér margar góðar og skemmtilegar sögur af þeirra viðskiptum. Grímur notaði oft Kröfluna og sagði mér margar skemmtilegar veiðisögur þar sem Kröflur í ýmsum litum komu við sögu. Strax þótti mér vænt um Grím og fyrr en varði varð til hjá mér hvatning til að upphefja þennan hógværa veiðimann og frábæra fluguhönnuð. Ég var ákveðinn í því að gera veg hans sem mestan innan fluguveiðinnar og aðstoða hann á allan þann hátt sem mögulegt var.

Grímur eignaðist jörðina Hvalsá í Hrútafirði fyrir nokkrum áratugum en við þá undurfögru litlu bergvatnsá hafði ég notið uppeldis við veiðar með föður mínum, Kristjáni Gíslasyni, og þar veiddi ég minn fyrsta lax. Í Sandkvörninni skammt fyrir neðan Árbæjarfossinn. Faðir minn og félagar hans voru með Hvalsána á leigu um tíma áður en Grímur keypti jörðina. Löngum stundum rædum við Grímur um Hvalsána. Þótti mér afar vænt um þá miklu umhyggju sem hann sýndi ánni. Var það í góðum takti við þankagang föðurs míns og hans félaga við Hvalsá. Það voru ómetanlegar stundir sem við áttum saman á kaffistofunni þegar Hvalsá bar á góma. Við einhvern veginn tókumst báðir á flug. Áttum það sameiginlegt að umræðuefnið var okkur kærara en flest annað og væntumþykjan og virðingin var við öll völdin. Það var stórbrotið að heyra Grím lýsa því hvernig hann komst niður í gljúfrið ofarlega við Hvalsá á fjórhjólinu þegar fæturnir höfðu að mestu lokið sínu hlutverki. Eftir öll árin gat ég lýst aðstæðum með nokkuð nákvæmum hætti og við Grímur rötuðum saman veginn við ána og áhugi beggja var alveg ósnortinn.

Grímur Jónsson var góður maður. Hann var einn af þessum gömlu góðu snillingum í fluguveiðinni sem því miður fer fækkandi. Með honum er genginn kær vinur margra og minningarnar eru margar og allar góðar.

Ég votta aðstandendum hans samúð mína og bið þeim blessunar í framtíðinni.

Blessuð sé minning Gríms Jónssonar.

Stefán Kristjánsson

Leave a Reply
© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík