Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

Fluguboxin okkar seljast eins og heitar lummur - Opið frá kl. 12 til 18 laugardaginn 22. desember

Í Veiðibúðinni Kröflu að Höfðabakka 3 er mikið úrval af veiðijólagjöfum fyrir veiðimenn sem gera miklar kröfur.

Í Veiðibúðinni Kröflu að Höfðabakka 3 er mikið úrval af veiðijólagjöfum fyrir veiðimenn sem gera miklar kröfur.

Fluguboxin okkar vinsælu renna út eins og heitar lummur og höfum við varla undan að raða flugum í hinar ýmsu tegundir af fluguboxum fyrir viðskiptavini okkar. Einnig minnum við á glæsilega fluguveiðipakka sem verið hafa mjög vinsælir enda frábær pakki þar á ferð og verðið sérlega hagstætt. Sjá nánar hér á Krafla.is undir flipanum ,,flugustengur"

Tréboxin okkar eru íslensk og með íslenskum flugum og þannig box fást aðeins hjá okkur í Veiðibúðinni Kröflu og á Krafla.is  Verðið á fluguboxunum er frá 1500 krónum og getur hver og einn viðskiptavinur ráðið því hve margar flugur eru í boxunum.

Við gröfum nöfn veiðimanna á boxin og enn er nægur tími til að fá box með áletrun afgreidd fyrir jólin.

Opnunartími hjá okkur er þannig til jóla: Laugardaginn 22. desember frá kl. 12 til 18. Á Þorláksmessu, sunnudaginn 23. desember frá kl. 12 til að minnsta kosti 20 og á aðfangadag frá kl. 11 til 13.

Leave a Reply
© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík