Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

Flugurnar vekja mikla athygli á Kröflugosinu - útsalan á fullu í Kröflu um helgina og allar vörur hér á Krafla.is á útsölu

Borgar Antonsson með 20 punda lax sem tók Kröflu orange í Breiðdalsá í fyrra.

Borgar Antonsson með 20 punda lax sem tók Kröflu orange í Breiðdalsá í fyrra.

,,Þetta er búið að fara fram úr okkar björtustu vonum og það hafa margir ánægðir veiðimenn farið frá okkur undan farna daga eftir að hafa gert frábær kaup á Kröflugosinu," segir Stefán Kristjánsson hjá Veiðibúðinni Kröflu, Höfðabakka 3.

Flugurnar okkar hafa vakið sérstaka athygli en þær eru nú í fyrsta skipti fáanlegar á góðu afsláttarverði. Rétt er að vekja athygli á því að allar vörur hér á Krafla.is eru á útsölu.

Kolskeggur, Iða og allar hinar léttu túpurnar eru á sérstöku afsláttarverði þessa dagana hjá Veiðibúðinni Kröflu.

Kolskeggur, Iða og allar hinar léttu túpurnar eru á sérstöku afsláttarverði þessa dagana hjá Veiðibúðinni Kröflu.

,,Við erum að selja þær í lausu en einnig í sérvöldum boxum sem veiðimenn hafa kunnað vel að meta. Við erum með sérstakt úrvalsbox fyrir silungsveiðimenn og mjög fallegt úrval fyrir laxveiðimenn sem nýtist mönnum nánast hvar sem er. Þessum boxum fylgja svo ókeypis flugubox á meðan birgðir endast. Þetta eru afar sterkar og vandaðar flugur sem fást bara hjá okkur og því um að gera fyrir veiðimenn að kíkja við," segir Stefán.

Það er margt fleira í boði á Kröflugosinu en flugurnar. Enn eru stengur á mjög góðu tilboðsverði, fluguhjól og línur á miklum afslætti og vöðlur og skór. Einnig eru vatnsheldir vöðlujakkar til frá rúmlega 10 þúsund krónum og undirfatnaður á miklum afslætti. Þá er auðvitað ónefnt ýmislegt smádót sem allt er á góðum afslætti, svo sem túpukrókar, grubber hnýtingakrókar, taumaefni og margt margt fleira.

Kröflugosið er í gangi frá klukkan 11 til 18 virka daga. Um helgina verður opið frá klukkan 11 til 16 á laugardag og á sunnudag frá klukkan 13 til 16.

Leave a Reply
© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík