13 í röð á rauða Kröflu í Norðurá og flugan enn í lagi - 6 af 7 tóku rauða Kröflu á Iðunni
This entry was posted on 17. July 2013
.Kröfluflugurnar eru að gera það gott um allt land og við heyrum stöðugar fréttir af góðum árangri veiðimanna sem þær nota. Oft á degi hverjum fáum við fréttir af Kolskeggi og hans afrekum og nú upp á síðkastið höfum við til dæmis verið að fá fréttir af rauðri Kröflu og þær ansi magnaðar.
Tökum tvö dæmi. Veiðimenn sem voru á Iðu nýverið lönduðu 7 löxum og sex þeirra tóku á rauða Kröflu. Flugan var afar sterk í þessu holli en rauði liturinn virtist alls ráðandi þennan dag. Sjöundi fiskurinn var 13 punda nýgenginn lúsugur hængur og veiðimaðurinn Jón Hilmarsson.
Leiðsögumaður við Norðurá hafði samband við okkur í gærkvöldi og þá var viðskiptavinur hans búinn að fá 13 laxa á stuttum tíma á rauða Kröflu. Veiðimaðurinn fékk 4 laxa undir lok vaktarinnar í fyrrakvöld og í gærmorgun fékk þessi sami veiðimaður 9 laxa á rauða Kröflu. ,,Það var með hreinum ólíkindum hvað laxinn var brjálaður í rauðu Kröfluna. Við vorum upp á dal og þar var mikið af laxi. Tvívegis gerði ég það að gamni mínu að skipta um flugu og þá datt takan niður. Síðan þegar ég setti rauðu Kröfluna aftur á þá fór öflug taka í gang á nýjan leik. Annað sem var merkilegt var að flugan er sem ný eftir öll þessi köst og 13 laxa. Hún gæti nánast farið beint aftur í fluguborðið í Veiðibúðinni Kröflu," sagði leiðsögumaðurinn.