Frábær veiði á Kröflufluguna Kolskegg í Blöndu
This entry was posted on 23. July 2013
.,,Það er mjög góður gangur í veiðinni í Blöndu og svakalega mikið líf á neðsta svæðinu. Ég hef aldrei áður séð svona mikið líf á Breiðunni og menn eru að fá mjög góða veiði," sagði Höskuldur Erlingsson leiðsögumaður við Blöndu í samtali við Krafla.is núna rétt áðan.
,,Það voru menn að hætta núna eftir tvo daga og þeir fengu rúmlega 40 laxa. Tæplega helmingurinn af þeim kom á flugu, 14 laxar og af þessum 14 komu 8 laxar á Kolskegg sem er hreinlega frábær fluga hér sem annars staðar og í miklu uppáhaldi hjá mér og mörgum fleirum. Ég nota mikið Kolskegginn og auðvitað eingöngu frá ykkur í Veiðibúðinni Kröflu. Ég nota hann í öllum útgáfum og hann er að gefa mér svakalega fína veiði, sérstaklega
þyngdu útgáfurnar. Einnig nota ég líka flottúpuna mikið með sökktaumum í mismunandi sökkhraða og svo er Kolskeggurinn með keilunni einnig mjög öflugur," sagði Höskuldur.
Við minnum veiðimenn á að Kolskegginn er einungis hægt að fá í Veiðibúðinni Kröflu, Höfðabakka 3.