Kröfluflugurnar lang sterkasta agnið á Iðu í sumar - fín veiði flesta daga
This entry was posted on 22. August 2013
.Veiði við Iðu í Biskupstungum hefur gengið vel í sumar en í fyrradag voru skráðir 229 laxar í veiðibókina í veiðihúsinu. Suma daga hefur veiði verið mjög góð en síðan hafa komið slakir dagar inn á milli. Yfirleitt veiða hollin einn dag í senn við Iðu og besti dagurinn í sumar var þegar 28 laxar komu á land og þeir tóku allir Kröfluflugur.
Kröfluflugurnar hafa í gegnum árin verið áberandi besta agnið við Iðu þegar flugur eru annars vegar og engin undantekning er þar á í sumar. Af þessum 229 löxum sem eru í bókinni hafa rúmlega 80 laxar fengist á Kröfluflugurnar en rúmlega 30 laxar á aðrar flugur. Besta flugan í sumar er Krafla Orange með 22 laxa en síðan koma Kolskeggur með 17 laxa og Krafla rauð með 15 laxa. Snælda hefur gefið 14 laxa og Frances 7 laxa. Rúmlega 80 laxar hafa veiðst á maðk og spón.
Ef veiðimenn eru á leið á Iðuna ættu þeir ekki að sleppa því að kíkja við í Veiðibúðina Kröflu í Höfðabakka 3 því Kröfluflugurnar fá þeir hvergi annars staðar.