Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

8 hluta Echo stöng og digital vigt á frábæru jólatilboði

Echo Trip flugustöngin er hönnuð af hinum heimsþekkta Tim Rajeff. Hér er um frábært tilboð að ræða.

Echo Trip flugustöngin er hönnuð af hinum heimsþekkta Tim Rajeff. Hér er um frábært tilboð að ræða.

Þeir sem eru að leita að góðri jólagjöf handa veiðimanni eða veiðikonu ættu að kíkja til okkar í Veiðibúðina Kröflu að Höfðabakka 3.

Í dag vorum við að byrja með frábær jólatilboð. Þar má nefna frábæra flugustöng, 9 feta Echo Trip einhendu fyrir línu nr. 5. Stöngin er í 8 hlutum og er í mjög fallegri tösku þar sem er einnig hægt að geyma flugubox og taumaefni svo eitthvð sé nefnt. Það fer eðlilega mjög lítið fyrir þessari frábæru stöng og hentar hún til dæmis vel í gönguferðir þar sem lítið fer fyrir henni í bakpoka.

Venjulegt verð á Echo Trip stönginni er kr. 69.900 en á jólatilboðinu er hún á 30% afslætti á aðeins kr. 48.900. Þetta er mjög skemmtileg stöng, í meðallagi hröð og vinnur mjög vel. Takmarkað magn.

Við hjá Veiðibúðinni Kröflu viljum minna á eitt annað jólatilboð af mörgum sem við erum með í gangi þessa dagana. Í boði er digital vigt sem tekur allt að 40 kg og er með tveimur aukastöfum. Rafhlöður fylgja. Venjulegt verð á vigtinni er kr. 4.890 en núna er hún í boði á aðeins kr. 3.900 með 20% afslætti.

Vigtin sem er á jólatilboðinu í Kröflu. Lítil og nett og rafhlöður fylgja.

Vigtin sem er á jólatilboðinu í Kröflu. Lítil og nett og rafhlöður fylgja.

Við bjóðum einnig upp á fluguveiðipakka frá Echo. Þar er um að ræða alvöru einhendu flugustöng með lífstíðarábyrgð, fluguhjól, undirlínu, flotlínu, taumi og flugubox með alvöru Kröfluflugum fylgir. Allt þetta fyrir aðeins kr. 28.900,- Þetta er að okkar mati langbesti fluguveiðipakkinn á markaðnum í dag. Sjá nánar hér á Krafla.is

Í Kröflubúðinni er mjög mikið úrval af flugum og fluguboxum og hvergi er boðið upp á meira úrval af íslenskum flugum og íslenskri hönnun. Við erum með íslensk flugubox úr mahoný og birki og getum grafið nöfn veiðimanna á boxin sem eru mjög persónuleg og falleg gjöf.

Kröfluflugurnar og fluguboxin fást aðeins í Veiðibúðinni Kröflu, Höfðbakka 3, símar 587-9500 og 698-2844.

Leave a Reply
© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík