Kröflugos hefst föstudaginn 27. mars - Kröfluflugur á hálfvirði og pylsur og kaldur á kantinum
This entry was posted on 23. March 2015
.Hið árlega Kröflugos hefst í Veiðibúðinni Kröflu föstudaginn 27. mars. Gosið verður óvenju glæsilegt að þessu sinni en það mun standa alla næstu helgi.
Veisla verður í Kröflu frá kl. 16 til 21 á föstudaginn. Boðið verður upp á gæðapylsur á grillinu frá Ali og kaldur á kantinum verður einnig í boði Kröflu. Bestu Kröfluflugurnar verða seldar á hálfvirði auk þess sem í boði verður kynningarverð á öllum öðrum vörum í versluninni. Það hefur aldrei verið hagstæðara að versla í Kröflu og við skorum á veiðimenn og konur að kíkja til okkar og nýta þetta einstaka tækifæri.
Ný flugusending var að koma í hús og eru nokkrir nýir gullmolar þar á meðal. Kröfluflugurnar fást aðeins í Veiðibúðinni Kröflu.
Við vorum einnig að fá nýja sendingu af flugustöngum og hjólum frá Echo og þar eru afar skemmtilegar nýjungar í boði. Meðal annars má nefna nýja hönnun á Glass fiber stöngum sem þegar hafa vakið mikla athygli.
Þá sýnum við Nautilus fluguhjólin frá Bandaríkjunum sem farið hafa sigurför um heiminn og eru af mörgum talin bestu fluguhjólin á markaðnum í dag enda komið best út í hverri könnuninni af annarri.
Nánari fréttir af Kröflugosi verða alla daga vikunnar hér á Krafla.is