Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

Kröflugos hefst föstudaginn 27. mars - Kröfluflugur á hálfvirði og pylsur og kaldur á kantinum

Veiðimenn segja að glæsilegasta fluguborðið sé í Veiðibúðinni Kröflu. Veiðimenn segja að glæsilegasta fluguborðið sé í Veiðibúðinni Kröflu.

Hið árlega Kröflugos hefst í Veiðibúðinni Kröflu föstudaginn 27. mars. Gosið verður óvenju glæsilegt að þessu sinni en það mun standa alla næstu helgi.

Veisla verður í Kröflu frá kl. 16 til 21 á föstudaginn. Boðið verður upp á gæðapylsur á grillinu frá Ali og kaldur á kantinum verður einnig í boði Kröflu. Bestu Kröfluflugurnar verða seldar á hálfvirði auk þess sem í boði verður kynningarverð á öllum öðrum vörum í versluninni. Það hefur aldrei verið hagstæðara að versla í Kröflu og við skorum á veiðimenn og konur að kíkja til okkar og nýta þetta einstaka tækifæri.

Ný flugusending var að koma í hús og eru nokkrir nýir gullmolar þar á meðal. Kröfluflugurnar fást aðeins í Veiðibúðinni Kröflu.

Við vorum einnig að fá nýja sendingu af flugustöngum og hjólum frá Echo og þar eru afar skemmtilegar nýjungar í boði. Meðal annars má nefna nýja hönnun á Glass fiber stöngum sem þegar hafa vakið mikla athygli.

Þá sýnum við Nautilus fluguhjólin frá Bandaríkjunum sem farið hafa sigurför um heiminn og eru af mörgum talin bestu fluguhjólin á markaðnum í dag enda komið best út í hverri könnuninni af annarri.

Nánari fréttir af Kröflugosi verða alla daga vikunnar hér á Krafla.is

 

 

© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík