Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

Kröfluflugurnar eru að skila góðri veiði - 10 laxar á Kolskegg í Langá

Þorsteinn Guðmundsson með gullfallega 13 punda hrygnu sem tók Kröflufluguna Iðu í Húseyjarkvísl nýverið. Þorsteinn Guðmundsson með gullfallega 13 punda hrygnu sem tók Kröflufluguna Iðu í Húseyjarkvísl nýverið.

Laxveiðivertíðin fer víða ágætlega af stað og nú berast fréttir af ágætri veiði í Norðurá, Langá og fleiri ám. Menn bíða afar spenntir eftir smálaxinum sem á að láta sjá sig þessa dagana í kjölfar stórstraumsins núna um helgina.

Víða berast fréttir af mjög góðri veiði á Kröfluflugurnar og eru þær að slá í gegn í sumar sem aldrei fyr. Kolskeggur fer þar fremstur í flokki ásamt Iðu og Kröflunum í ýmsum litum.

Í Laxá í Dölum voru franskir veiðimenn með þriggja daga holl nýverið. Fengu þeir þrjá laxa og alla á Kolskegg. Grétar Þorgeirsson, staðarhaldari við Laxá í Dölum, sagði í samtali við Krafla.is í gær að hann hefði séð ágætar torfur af laxi ganga í Laxá á flóðinu í gærkvöld.

Í fyrradag komu 7 laxar á land í Ytri Rangá og 5 af þeim voru á Iðu.

Holl sem var í Húseyjarkvísl í Skagafirði nýverið fékk 3 laxa og alla á Kröfluflugur. Fiskarnir fengust á Iðu, Kröflu orange og Kolskegg.

Í dag fréttum við af mikilli veiði á Kolskegg í Langá. Veiuðimaður sem við töluðum við í hvíldartímanum í dag var kominn með 6 laxa og alla á Kolskegg. Tveir aðrir veiðimenn í Langá sem við fréttum af voru með 4 laxa og alla á Koskegg.

Við munum halda áfram að segja frekari fréttir af laxveiðinni hér á Krafla.is og birtum fljótlega nýjar tölur frá Langá á Mýrum. Og að venju minnum við á að Kolskeggur, Iða og allar hinar Kröfluflugurnar fást aðeins í Veiðibúðinni Kröflu, Höfðabakka 3.

Að framansögðu má ljóst vera að það ætti að borga sig að kíkja til okkar í Kröflu áður en haldið er til veiða. Við verðum með opið á morgun sunnudag frá kl. 13 og fram eftir degi.

Þess má geta að flugusala hefur verið mjög mikil hjá okkur í Kröflu það sem af er vori og sumri og er ekki of mikið til af sumum tegundum. Ný flugusending er væntanleg fljótlega.

© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík