Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

Fréttir

  • Allir flugufiskarnir á Skrögg, Kolskegg og ýmsar Kröflur í Hólsá - vatnavextir í Norðurá

    Þorsteinn Guðmundsson ásamt dóttur sinni með fallegan lax sem tók Skrögg flottúpu. Þorsteinn fékk fjóra laxa og alla á Slrögginn.

    Þorsteinn Guðmundsson ásamt dóttur sinni með fallegan lax sem tók Skrögg flottúpu. Þorsteinn fékk fjóra laxa og alla á Slrögginn.

    ,,Þetta var skemmtileg veiði og ég fékk alla 4 laxana mína á Skrögginn. Þetta voru mjög skemmtilegar tökur og greinilegt að Skröggurinn gefur Kolskeggi ekkert eftir. Þetta er greinilega hörkugóð fluga," sagði Þorsteinn Guðmundsson í samtali við Krafla.is í gær en um síðustu helgi var hann ásamt félögum sínum í Mokveiðifélaginu við veiðar vesturbakka Hólsár.

    Hollið fékk 32 laxa. Þetta var fjölskylduferð með konur og börn og um helmingur laxanna kom á flugur. Flestir á Skrögg og Kolskegg en einig margir á Kröflutúpur í ýmsum litum, orange, rauða og Kröflu Eld. Þess má geta að holli'ð á undan þeim félögum fékk engan lax.

    Sævar Örn Hafsteinsson með flottan 7 punda lax úr Hólsá sem tók Kolskegg flottúpu.

    Sævar Örn Hafsteinsson með flottan 7 punda lax úr Hólsá sem tók Kolskegg flottúpu.

    Þessi lax tók Kolskegg í Hólsánni og var hreinlega brjálaður allan tímann að sögn veiðimannsins Sævars Arnar.

    Þessi lax tók Kolskegg í Hólsánni og var hreinlega brjálaður allan tímann að sögn veiðimannsins Sævars Arnar. Stökk nær látlaust allan tímann.

    Norðurá er að skríða í 2000 laxa og er það aðeins slakari veiði en í fyrra á sama tíma svo munar um 400 löxum. Í fyrra veiddust rúmlega 3000 laxar. Síðasta holl í Norðurá veiddi 61 lax. Mikil rigning var á Holtavörðuheiði í gærkvöldi og Norðurá var farin að taka lit. Mjög líklegt að áin verði mórauð og óveiðandi í dag föstudag enda áin vaxið hratt síðustu klukkustundir.

    Þessi tók rauða Kröflutúpu í Hólsánni.

    Þessi tók rauða Kröflutúpu í Hólsánni hjá Herði Hafsteinssyni.

  • 45 laxar af 58 við Iðu á Kröfluflugur - fréttir héðan og þaðan

    Steinar Petersen losar gula Kröflutúpu úr fallegum smálaxi á Iðunni á dögunum. Alls hafa 20 laxar veiðst á Kröflur á Iðunni í sumar og er hún langskæðasta flugan samkvæmt veiðibók.

    Steinar Petersen losar gula Kröflutúpu úr fallegum smálaxi á Iðunni á dögunum. Alls hafa 20 laxar veiðst á Kröflur á Iðunni í sumar og er hún langskæðasta flugan samkvæmt veiðibók.

    Þann 15. ágúst sl. var búið að skrá 91 lax í veiðibókina við Iðu í Biskupstungum. Fastlega má gera ráð fyrir að um 200 laxar hafi þegar veiðst við Iðu í sumar en veiðimenn sem nýta helming veiðiréttarins á svæðinu skrá ekki afla í veiðibók og hafa aldrei gert.

    Við tókum saman nokkrar tölur við Iðu 15. ágúst. Af þessum 91 laxi sem var í bókinni voru 58 veiddir á flugu, 21 á spón og 12 á maðk. Flugur frá okkur á Krafla.is hafa verið sérlega gjöfular við Iðu í sumar en af þessum 58 flugulöxum voru 45 á  flugur frá okkur á Krafla.is og einungis 13 laxar á aðrar flugur. Kröflur í ýmsum litum höfðu gefið langflesta laxa eða 20, Marbendill 12, Skröggur 4 laxa, Ólsen Ólsen 2 laxa, Kolskeggur flottúpa 2 laxa, silungaflugan Mýsla 2 laxa og Iða flottúpa, Randalín og Grýla 1 lax hver.

    Síðasta holl sem við fréttum af í Djúpadalsá og var við veiðar um miðjan ágúst fékk 40 bleikjur og 4 laxa. Létu veiðimenn afar vel af dvöl sinni við ána.

    Þessi tók Skrögg flottúpu í Laxá í Kjós.

    Þessi tók Skrögg flottúpu í Laxá í Kjós.

    Við erum látlaust að frétta af mjög góðri veiði á flugur frá okkur á Krafla.is og ásóknin í flugur okkar í sumar er eftir því. Ljóst er að Long Wing flottúpurnar Kolskeggur, Skröggur og Iða eru algjörlega að slá í gegn og án vafa er Kolskeggur ,,spútnikfluga" ársins.

  • ,,Magnaðasta taka sem ég hef fengið á flugu - Kolskeggur fluga ársins"

    Guðmundur Stefán Máríasson glímir við vænan lax sem tók svarta Kröflu við opnun Norðurár í sumar.

    Guðmundur Stefán Máríasson, formaður SVFR, tekst hér á við vænan lax sem tók svarta Kröflu við opnun Norðurár í sumar.

    ,,Ég gat ekki hugsað mér, frekar en margir aðrir veiðimenn í sumar, að fara í veiðitúrinn án þess að hafa Kolskegg meðferðis. Ég fékk mér því nokkra á Krafla.is og sé ekki eftir því. Kolskeggurinn klikkaði ekki," sagði Eiríkur Stefán Eiríksson, stjórnarmaður í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur, en hann var í ,,stjórnarhollinu" sem veiddi Norðurá um liðna helgi.

    ,,Ég setti Kolskegginn á strax á fyrstu vaktinni og var þá staddur í Krossholu neðan við Laxfoss. Skipti engum togum að lax réðst á Kolskegginn strax og hún kom í vatnið. Laxinn kom allur upp úr hylnum og þetta var magnaðasta taka sem ég hef fengið á flugu á mínum ferli sem veiðimaður. Og nú trúi ég öllum sögunum sem ég hef heyrt og lesið um þessa mögnuðu flugu. Kolskeggurinn sem Stefán Kristjánsson á Krafla.is hannaði aðeins 12 ára gamall á síðari hluta síðustu aldar er að mínu mati fluga ársins í ár," sagði Eiríkur ennfremur.

    Stjórnarhollið fékk aðeins 25 laxa á 12 stengur í umræddum veiðitúr og er það mjög slök veiði enda aðstæður nánast vonlausar. Norðuráin afar vatnslítil og erfið viðureignar. En Kolskeggurinn klikkaði hins vegar ekki og af þessum 25 löxum sem hollið fékk voru 7 eða 8 á Kolskegg. Veiði í Norðurá hefur verið svakalega léleg undanfarið og dæmi um að heil vakt hafi aðeins skilað 2 löxum á 12 stengur. Núna hljóta hins vegar að vera skemmtilegir dagar framundan í Norðurá því rennsli árinnar var komið í 10 rúmmetra á miðnætti í gær og hafði vatnsmagnið þá tvöfaldast frá því sem var um liðna helgi.

  • Geggjaðar tökur og Iðan snarvirkaði í Hafralónsá

    Tveir laxar sem tóku Iðu flottúpuna.

    Tveir laxar sem tóku Iðu flottúpuna.

    ,,Þetta var afskaplega skemmtilegur veiðitúr og það voru ekki sýst flugurnar frá ykkur á Krafla.is sem gerðu hann skemmtilegan. Ég hafði keypt mér nokkur eintök af Kolskegg og Iðu flottúpum og var mjög spenntur að reyna þessar flugur sem ég hafði aldrei séð áður. Og ég varð ekki fyrir neinum vonbrigðum," sagði Baldur Snorrason sem var við veiðar á dögunum í Hafralónsá.

    ,,Ég byrjaði með Kolskegginn og hann gaf mér strax laxa. Síðan fékk Iðan sitt tækifæri og hún gaf Kolskeggnum ekkert eftir. Og tökurnar á Iðuna voru alveg geggjaðar. Iðan sannaði sig heldur betur fyrir mér í þessum túr," sagði Baldur.

    Baldur fékk aukaflugur með í pöntun sinni á Krafla.is og tók á það ráð þegar veiðitúrinn var á enda að gefa næstu veiðimönnum eintök af Kolskegg og Iðu. ,,Ég var forvitinn og dokaði aðeins við og beið eftir að þeir byrjuðu að veiða í eftirmiðdaginn. Ég stoppaði

    Iða sem flottúpa í stærðum 1,5", 1" og sem hefðbundin gárutúpa 3/4".

    Iða sem flottúpa í stærðum 1,5", 1" og sem hefðbundin gárutúpa 3/4".

    við einn hylinn á leiðinni heim og sá þá að einn veiðimaðurinn sem tók við af okkur og hafði sett Iðu flottúpuna undir hjá sér var með kengbogna stöng í öðru kasti. Þá hélt ég ánægður heim á leið eftir frábæran veiðitúr," sagði Baldur Snorrason.

Hlutur 153 til 156 af 191

Síða:
  1. 1
  2. ...
  3. 37
  4. 38
  5. 39
  6. 40
  7. 41
  8. ...
  9. 48
© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík