Fréttir - Krafla.is
-
Höfðingleg gjöf frá Steinari til Kröflu
Okkur hjá veiðibúðinni Kröflu barst á dögunum höfðingleg gjöf frá Steinari Petersen sem á og rekur heildverslunina Hellas.
Þannig háttar til að faðir Steinars, Gunnar Petersen, var góður veiðifélagi Kristjáns Gíslasonar Kröfluhönuðar með meiru og á dögunum kom Steinar færandi hendi til okkar í Kröflu. Hafði hann meðferðis forláta 13 feta Hardy flugustöng sem var lengi í eigu Gunnars Petersen.
Hér er um einkar glæsilegan forngrip að ræða og er hann á leið upp á vegg í versluninni Kröflu og þar geta veiðimenn barið þessa glæsilegu tvíhendi augum. Reikn má með að stöngin sé 50-60 ára gömul í það minnsta.
Við hjá Kröflu viljum þakka Steinari fyrir höfðinglega gjöf.
-
Mýslan sterk í Elliðavatni
,,Þetta var skemmtileg tilbreyting og frábært að geta komist út undir bert loft og kastað fyrir fiska," sagði veiðimaðurinn Grétar Þorgeirsson í samtali við Krafla.is en hann fór á dögunum til veiða í Elliðavatni ásamt sonum sínum þremur og fengu þeir feðgar fallegan afla.
Þeir feðgar urðu vel varir á kúluhausa og var Mýslan að gefa en við höfum einmitt heyrt af henni sögur úr vatninu nýverið. Einnig höfum við heyrt að Krókurinn og Beykir hfi verið að gefa mönnum ághæta veiði. Síðustu daga hafa aðstæður verið góðar til fluguveiði í Elliðavatni. Með hækkandi hitastigi vex magn af æti í vatninu hratt og oftast batnar veiðin verulega í kjölfarið.
-
Nýtt Sportveiðiblað
Nýtt Sportveiðiblað er komið á markaðinn og er um afmælisblað að ræða en blaðið fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir.
Blaðið er 140 síður og kennir ýmissa grasa í blaðinu að þessu sinni eins og venjulega. Aðalefni blaðsins er viðtal við sérstakan saksóknara, Ólaf þór Hauksson.
Sportveiðiblaðið kostar 999 krónur í lausasölu.
-
Styttist í að miklum breytingum ljúki hjá Veiðibúðinni Kröflu - 75% stærra fluguborð
Veiðitímabilið færist óðum nær en veiði í Elliðavatni hefst í dag og í hugum margra er það upphafið að nýrri veiðivertíð.
Við hjá Veiðibúðinni Kröflu höfum staðið í ströngu síðustu vikurnar og senn sér fyrir endan á stækkun búðarinnar og miklum framkvæmdum og breytingum. Breytingum verður að mestu lokið um páskana og strax í kjölfarið mun búðin fyllast af nýjum glæsilegum vörum.
Við erum þegar búin að fá mjög stóra flugusendingu frá framleiðanda okkar og þar kennir margra grasa. Margar nýjar flugur verða á boðstólum og aðrar sem slegið hafa rækilega í gegn á undanförnum árum verða nú í boði í nýjum mjög spennandi útfærslum. Þessar flugur voru í reynsluveiði í fyrra meðal öflugra veiðimanna og stóðu sig stórkostlega vel. Við getum því kinnroðalaust mælt með þeim sem úrvalsvöru um leið og við hvetjum veiðimenn til að varast ónýtar eftirlíkingar. Við höfum fengið mikið af kvörtunum yfir flugum okkar sem keyptar hafa verið í öðrum búðum sem stunda það að stela hönnun annarra og vanvirða hönnun íslenskra fluguhönnuða og hnýtara út í eitt. Við viljum því hvetja fluguveiðimenn til að kaupa okkar flugur hjá okkur. Þær fást hvergi annars staðar í boðlegum gæðum og í réttu útliti en hjá okkur að Höfðabakka 3 og í netverslun okkar Krafla.is Nánar um þau mál síðar.
Við erum búin að stækka fluguborðið okkar um 75% frá í fyrra og að mati þeirra sem séð hafa er þetta lang fallegasta fluguborð landsins og þó víða væri leitað. Við munum í sumar bjóða veiðimönnum upp á fleiri flugur en okkar. Mun þar margt koma á óvart og höfum við rætt við höfunda flugnanna og fengið hjá þeim tilskilin leyfi gegn greiðslu til höfundanna. Munu fluguveiðimenn því fá allar helstu flugurnar hjá okkur í sumar og úrvalið mun stóraukast.
Við hjá Veiðibúðinni Kröflu höfum gerst umboðsaðilar á Íslandi fyrir bandarísku flugustangirnar ECHO. Þetta eru heimsþekktar stangir sem þekktar eru fyrir mikil gæði og góð verð. Reyndar mun betri verð en verið hafa í boði hérlendis fyrir sambærilegar stangir. Stangirnar frá ECHO eru hannaðar af Tim Rajeff sem fyrir margt löngu hefur haslað sér völl sem einn allra færasti hönnuður stanga í heiminum. Við munum einnig bjóða upp á fluguhjól og línur frá ECHO.
Við greinum nánar frá þessu á næstu dögum en fyrsta sending frá ECHO er væntanleg innan skamms.