Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

Fréttir - Krafla.is

  • Lentu í algjörri veislu í Blöndu: fengu 17 laxa á gárutúpuna Gassa og 3 á Kolskegg á einum degi

    Gassi er gríðarlega flott fluga. Þessi hitchtúpa gaf veiðimönnum 17 laxa á einum degi í Blöndu nýverið.

    Gassi er gríðarlega flott fluga. Þessi hitchtúpa gaf veiðimönnum 17 laxa á einum degi í Blöndu nýverið.

    ,,Þetta var algjör veisla. Við félagarnir fórum á 4. svæðið í Blöndu og fengum 31 lax á einum degi. 20 af þessum löxum tóku hitchtúpur eða gárutúpur. Ég var svo lánsamur að ég hafði komið við í Krafla.is í Höfðabkka 3 og fengið mér þar flugur og gárutúpur sem eru í algjörum sérflokki á markaðnum í dag að mínu mati. Á meðal þeirra flugna sem ég keypti var Gassi. Þetta er svolítið glannaleg gárutúpa en gaf okkur þessa roslegu veiði, 17 laxa á einum og sama deginum," sagði fluguveiðimaður í samtali við okkur hér á Krafla.is  Því miður gleymdum við að taka niður nafn hans er hann kom til okkar að endurnýja flugubirgðirnar á dögunum en við bætum vonandi úr því síðar.

    ,,Það var ótrúlegt að sjá hvernig Gassi snarvirkaði. Og það er ekki lítið atriði hve góðar þessar flugur eru. Gárutúpurnar frá Krafla.is fljóta eins og korkur og ég fékk meira að segja einn laxinn á gárutúpuna þegar hún skautaði niður eftir ánni. Þetta var alveg ótrúlegur dagur og ég mun varla nota aðrar flugur í framtíðinni," sagði veiðimaðurinn og var vel sáttur. Hann og veiðifélagi hans fengu að auki 3 laxa á Kolskegg gárutúpu.

    Við minnum fluguveiðimenn á verslun okkar að Höfðabkka 3 og netverslun okkar á Krafla.is  Við erum alltaf með heitt á könnunni og nýjustu fréttirnar úr veiðinni.

  • Morgunstund við Laxá í Dölum: 11 laxar tóku bláu Grímuna í beit

    Gríma blá. Gaf veiðimönnum 11 laxa í beit í Laxá í Dölum nú nýverið.

    Gríma blá. Gaf veiðimönnum 11 laxa í beit í Laxá í Dölum nú nýverið.

    ,,Þetta var mjög skemmtileg morgunstund og líður mér seint úr minni. Ég var að leiðbeina veiðimönnum við veiðistaðinn Þegjanda hér í Laxá í Dölum. Við byrjuðum morguninn á því að setja á Iðu þríkrækju. Þrír laxar tóku fluguna og sýndu henni mikinn áhuga en þeir höfðu allir betur. Þá datt mér í hug að setja á taumendann bláa Grímu og þá varð allt vitlaust. Mínir menn lönduðu 11 löxum og hættu sælir og glaðir þrátt fyrir að nokkuð væri eftir af veiðitímanum," sagði Gunnar Örn Pétursson, leiðsögumaður við Laxá í Dölum í samtali við Krafla.is

    Þrír dagar eru síðan að þetta gerðist. Síðan hefur rignt og framundan eru skemmtilegir tímar fyrir veiðimenn í Laxá. ,,Við hefðum eflaust getað veitt nokkra laxa til viðbótar á bláu Grímuna enda var töluverður tími eftir þegar við héldum í hvíldartímann," sagði Gunnar Örn. Hann sagði ennfrtemur að mikið væri af laxa á neðra svæði Laxár og óhemju mikla fiskgengd í ána þrátt fyrir lítið vatn en það er örugglega orðin breyting á því núna.

    Gríma blá er til sölu hjá okkur í Höfðabakka 3 ásamt mesta úrvali landsins af íslenskum flugum og öllum öðrum vörum fyrir fluguveiðina og einnig í netversluninni Krafla.is Grímuna hannaði Kristján Gíslason 1966 og er þetta með elstu flugum Kristjáns. Gríman hefur lengi verið afar sterk fluga, bæði í lax- og silungsveiði og ættu veiðimenn ekki að láta hana vanta í boxið sitt. Gríman bláa er fáanleg sem þríkrækja, tvíkrækja og gárutúpa. Einnig er hægt að fá Grímuna rauða, gula og græna.

  • Friðþjófur missti tröll á gula Kröflu í Breiðdalsá

    Friðþjófur Eyjólfsson með fallegann nýrunninn lax sem tók rauða Kröflu í Breiðdalsá á dögunum.

    Friðþjófur Eyjólfsson með fallegan nýrunninn lax sem tók rauða Kröflu í Breiðdalsá á dögunum.

    ,,Þetta var skemmtilegur veiðitúr og Kröfluflugurnar voru að skila mér mjög góðri veiði. Ég setti í eina sex laxa en náði þremur á Kröflur í ýmsum litum," sagði Friðþjófur Eyjólfsson í samtali við okkur áKrafla.is en hann var við veiðar nýverið í Breiðdalsá.

    ,,Verst var þó að missa þann stærsta. Hann tók tommulanga gula Kröflu og var örugglega yfir 20 pundum. Það var snörp viðureign og skemmtileg á meðan á henni stóð," sagði Friðþjófur sem var mjög sáttur við Kröfluflugurnar.

    Við heyrum stöðugt miklar aflafréttir af okkar flugum og eru þær að drepa fiska um allt land og mun víðar en áður. Flugur okkar eru hvarvetna í mjög mikilli sókn og hafa mjög margir fluguveiðimenn, sem heimsótt hafa okkur í verslun okkar að Höfðabakka 3, lýst yfir mikilli ánægju með gæði flugnanna.

    Rauða Kröflu keilutúpan á réttum stað í kjaftvikinu eftir löndun í Breiðdalsá á dögunum.

    Rauða Kröflu keilutúpan á réttum stað í kjaftvikinu eftir löndun í Breiðdalsá á dögunum.

  • Rosaleg veiði á Iðu flottúpuna í Húseyjarkvísl - 14 á land og 9 á Iðuna

    ,,Þetta var góður veiðitúr og við lentum í ævintýrum að vanda. Það var komið þó nokkuð af laxi í ána og við urðum vel varir," sagði Hörður Hafsteinsson í samtali við Krafla.is en á dögunum voru hann og félagar hans í Mokveiðifélaginu við  veiðar í Húseyjarkvísl. Hollið fékk 14 laxa. 9 þeirra komu á Iðu long wing flottúpu, 3 á Kolskegg flottúpu, einn á gula Kröflu og einn tók Sunray Shadow.

    ,,Þetta voru flottir fiskar og meðalþyngdin mjög góð. Við misstum einnig marga fiska og þar á meðal mikið tröll sem tók stórfiskafluguna Skrögg sem long wing flottúpu. Mér fannst annars merkilegt hvað Iðan kom rosalega sterk út úr þessum veiðitúr. Við höfum ekki gefið henni alltof mikinn séns en hún kom rosalega sterk inn. Og tökurnar voru alveg ótrúlegar. Í eitt skiptið var græðgin svo mikil að laxinn kom upp úr ánni og tók Iðun á lofti. Bróðir minn stóð við hliðina á mér og við höfum aldrei séð annað eins. Stundum voru tökurnar svo svakalegar að það var ekki viðlit að losa Iðuna úr löxunum enda náðum við ekki til flugunnar," sagði Hörður.

    Hér fylgja með nokkrar glæsilegar myndir frá Mokveiðifélaginu úr veiðitúrnum. Við viljum taka fram að Iðu flottúpuna, Kolskegg, Skrögg og aðrar flugur okkar á Krafla.is færð þú aðeins í fullum gæðum hjá okkur eða í Höfðabakka 3. Hugsanlega gætu verið til  nokkur eintök í Ellingsen í Reykjavík. Við viljum vara fluguveiðimenn við lélegum eftirlíkingum af okkar flugum sem eru til sölu í veiðivöruverslunum. Til dæmis í Veiðibúðinni við lækinn í Hafnarfirði. Veiðimenn sem keyptu Kröflur í umræddri verslun höfðu samband við okkur og töldu flugurnar algjörlega ónýtar.  Á þessum flugum berum við enga ábyrgð frekar en öðrum eftirlíkingum. Veiðimenn geta aðeins verið öryggir um 100% gæði ef þeir versla okkar flugur hjá okkur.

    Ólafur Hafsteinsson með 88 cm langan lax sem tók Iðu 1,5" flottúpu.

    Ólafur Hafsteinsson með 88 cm langan lax sem tók Iðu 1,5" flottúpu.

    Hörður Hafsteinsson með 89 cm lax sem tók Iðu 1" flottúpu.

    Hörður Hafsteinsson með 89 cm lax sem tók Iðu 1" flottúpu.

    Sævar Hafsteinsson með 87 cm lax sem tók Iðu 1" flottúpu.

    Sævar Hafsteinsson með 87 cm lax sem tók Iðu 1" flottúpu.

    Hafsteinn með 84 cm lax sem tók Kolskegg 1" flottúpu.

    Hafsteinn Harðarson með 84 cm lax sem tók Kolskegg 1" flottúpu.

    Þorsteinn Guðmundsson með 82 cm lax sem tók Iðu 1" flottúpu.

    Þorsteinn Guðmundsson með 82 cm lax sem tók Iðu 1" flottúpu.

Hlutur 125 til 128 af 203

Síða:
  1. 1
  2. ...
  3. 30
  4. 31
  5. 32
  6. 33
  7. 34
  8. ...
  9. 51
© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík