Frábærir birtingar á Iðu og Randalín í gær í opnun í Húseyjarkvísl við afar erfiðar aðstæður
This entry was posted on 3. April 2010
.,,Þetta var rosalega gaman þrátt fyrir að allar aðstæður væru mjög óhagstæðar. Fyrst til að byrja með var erfitt að finna vakir á ánni til að kasta í en síðan skánaði þetta um tíma. Þá náðum við sambandi við fiska og okkur virtist vera mjög mikið af fiski í ánni," sagði Sævar Örn Hafsteinsson í samtali við Krafla.is í gærkvöld en hann var þá við veiðar í Húseyjarkvísl í Skagafirði ásamt félögum sínum í Mokveiðifélaginu.
Þeir félagar hafa haft það fyrir sið að opna Húseyjarkvísl að vori. Páskahretið norðanlands í ár fór ekki framhjá þeim félögum og eins og sést á myndunum með þessari frétt voru aðstæður mjög erfiðar. Þrátt fyrir það veiddu félagarnir í Mokveiðifélaginu 8 fiska og marga hverja mjög fallega en vatnshiti var lengstum undir frostmarki. ,,Við höfðum sannarlega vonast eftir betri aðstæðum en getum ekki kvartað. Ef aðstæður hefðu verið betri hefðum við veitt marga tugi fiska en það verður að bíða betri tíma. Þetta var alveg svakalega gaman og með sanni hægt að segja að við höfum náð úr okkur hrollinum fyrir sumarið og rúmlega það. Og enn einu sinni reyndust flugurnar frá Krafla.is okkur frábærlega,"sagði Sævar Örn.