Þrír til viðbótar í Norðurá í morgun á Kolskegg flottúpu
This entry was posted on 6. June 2010
.Í morgun höfðum við spurnir af því að þrír laxar til viðbótar hefðu veiðst í Norðurá. Það voru hjónin Þorsteinn Ólafs og Lára Kristjánsdóttir sem veiddu laxana í Myrkhyl og Myrkhylsrennum og allir tóku þeir flottúpuna Kolskegg long wing. Opnunarhollið er því búið að fá 8 laxa og 5 af þeim veiddust á Kolskegg. Að auki vitum við af tveimur löxum til viðbótar sem tóku Kolskegg og Kröflu orange en þeir náðust ekki á land.
Við eigum von á fleiri myndum og birtum þær þegar þær berast okkur.