Lausir dagar á góðum tíma í Djúpadalsá
This entry was posted on 15. June 2010
.Við á Krafla.is viljum vekja áhuga fluguveiðimanna á þeirri staðreynd að lausir eru nokkrir dagar í Djúpadalsá í Reykhólahreppi og eru þessir lausu dagar á mjög góðum tíma.
Í fyrra veiddust 660 bleikjur í Djúpadalsá og 35 laxar. Allar upplýsingar um ána er að finna hér á Krafla.is undir Djúpadalsá. Þessa dagana erum við að raða veiðimönnum niður á sumarið en i sumar verður í fyrsta skipti einungis leyfilegt að veiða á flugu í Djúpadalsá.
Djúpadalsá er gullfalleg í alla staði og ert tilvalin fyrir fjölskyldur þar serm auðvelt er að kenna nýliðum í fluguveiði réttu handtökin. Allir fá fisk og öll aðstða er mjög góð og meðal annars hafa veiðimenn aðgang að mjög góðri innisundlaug í stuttu gönufæri frá veiðihúsi.
Allar upplýsingar ásamt fjölda mynda eru hér á Krafla.is og þeir sem hafa áhuga á lausum dögum geta haft samband við okkur á sk@krafla eða í síma 698-2844.