Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

Krafla.is opnar verslun að Höfðabkka 3 - góðar vörur fyrir fluguveiðimenn og áhersla lögð á góða og persónulega þjónustu

Við höfum nú flutt verslun okkar, Krafla.is að Höfðabakka 3, neðan við Prentsmiðjuna Odda.

Við höfum nú flutt verslun okkar, Krafla.is að Höfðabakka 3, neðan við Prentsmiðjuna Odda þar sem skrifstofuvöruverslun Odda var áður til húsa.

Við hjá www.Krafla.is höfum nú flutt í nýtt húsnæði að Höfðabakka 3 eða í næstu götu neðan við Prentsmiðjuna Odda. Að Höfðabakka 3 seljum við allar flugur okkar sem eru í boði í netversluninni Krafla.is og auk þess bjóðum við í Höfðabakka 3 upp á mikið úrval af vörum fyrir fluguveiði og vöruúrvalið eykst með degi hverjum.

Að Höfðabakka 3 bjóðum við meðal annars upp á mjög góðar flugustengur frá Snowbee og Shakespeare á hreint frábærum verðum, allt frá 7 fetum til 10 feta. Við bjóðum einnig upp á mjög góð fluguhjól frá sömu framleiðendum og flugulínurnar frábæru frá Snowbee sem eru í allra fremstu röð og á mjög hagstæðu verði. Einnig erum við með mjög hentugar og fisléttar mittis öndunarvöðlur með áföstu stígvéli eða með skóm og hefðbundnar öndunarvöðlur frá Snowbee og Rapala (Vengen). Að auki geta fluguveiðimenn fengið nánast allt nauðsynlega smádótið í veiðitúrinn hjá okkur.

Um leið og við seljum laxa- og silungaflugur í allra fremstu röð, íslenska hönnun og níðsterkar flugur, þá erum við afar ánægð með að geta nú boðið fluguveiðimönnum upp á flestar ef ekki allar þær vörur sem nauðsynlegar eru í veiðitúrinn á frábæru verði að Höfðabakka 3.

Við hjá Krafla.is setjum í forgang að bjóða viðskiptavinum okkar upp á mjög góðar vörur á sanngjörnu og viðráðanlegu verði og viljum veita mjög góða þjónustu. Við sem stöndum að Krafla.is höfum verið viðloðandi lax- og silungsveiði í 45 ár og á þeim langa tíma hefur safnast upp mikil þekking og reynsla sem gaman verður að miðla til viðskiptavina okkar í framtíðinni.

Við bjóðum fluguveiðimenn velkomna til skrafs og ráðagerða að Höfðabakka 3 og erum alltaf með veiðikaffi á könnunni.


Leave a Reply
© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík