Velkomin(n) á vefverslun Kröflu

Cart:

0 item(s) - 0 kr
Það eru engar vörur í körfunni þinni.

0

Bjarni lenti í ótrúlegri veiði á Beygluna

Eplið og eikin. Bjarni Júlíusson aðstoðar ungan son sinn í veiðitúr í Selvallavatni á Snæfellsnesi þar sem silungaflugan Beygla var í aðalhlutverki.

Eplið og eikin. Bjarni Júlíusson aðstoðar ungan son sinn í veiðitúr í Selvallavatni á Snæfellsnesi á dögunum þar sem silungaflugan Beygla var í aðalhlutverki.

,,Þetta var svakalega skemmtileg veiði. Það er mikill silungur í Selvallavatni og gaman að veiða þar. Það er líka gaman þegar nýjar flugur stimpla sig inn með eftirminnilegum hætti. Beyglan kom svo sannarlega skemmtilega á óvart og við höfum einnig veitt mjög velæ á Beygluna í Hraunsfirðinum. Fyrir mér er það ekki vafamál lengur að Beyglan er afburða sterk fluga í silungsveiði," sagði Bjarni Júlíusson, fyrrverandi formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur, í samtali við okkur á Krafla.is

,,Ég var við veiðar í Selvallavatni á Snæfellsvatni á dögunum með syni mínum Hafþóri Bjarna. Ég fékk strax fisk í fyrsta kasti á Krókinn.  Þegar leið nokkur tími án þess að ég yrði var setti ég Beyglu undir. Það var eins og við manninn mælt. Það varð allt vitlaust. Ég landaði 8 fallegum urriðum og missti annað eins. Þetta var alveg mögnuð reynsla því nálægt mér voru menn að veiða á hinar og þessar flugur en ekkert gekk. Beyglan er nokkuð sérstök silungapúpa og efnið í vængjunum sérstakt í meira lagi. Það getur verið að það hafi skipt sköpum því mjög mikið magn var af fiðrildum á svæðinu. Allavega var þetta ótrúlega skemmtileg veiði á Beygluna sem verður lengi í minnum höfð," sagði Bjarni Júlíusson.

Beyglan er silungafluga eftir Gylfa heitinn Kristjánsson . Með síðustu flugum sem sá mikli snillingur hannaði. Beyglan hefur verið vanmetin en hún er gríðarlega sterk silungafluga. Við erum sem aldrei fyr að heyra sögur af mikilli veiði á þessa sérstöku flugu og þær eiga örugglega eftir að verða mun fleiri í framtiðinni.

Beyglan er mjög sterk í silungsveiðinni og Bjarni Júlíusson kynntist því rækilega í Selvallavatni á dögunum.

Beyglan er mjög sterk í silungsveiðinni og Bjarni Júlíusson kynntist því rækilega í Selvallavatni á dögunum.

Leave a Reply
© 2018 Skrautás Ehf. - Sími 6982844 - kt. 520799-2149 - vsk nr. 63003 [email protected] - Leiðhamrar 39 - 112 Reykjavík