Kolskeggur skilaði óðum fluguveiðimönnum 7 löxum af 10 í Stóru Laxá
This entry was posted on 11. September 2010
.Stóra Laxá í hreppum er að vakna til lífsins en áin hefur verið afskaplega döpur í sumar og varla runnið langtímum saman sökum vatnsleysis.
Vel skipað holl veiðimanna sem var við veiðar í Stóru Laxá á dögunum á svæði 1 og 2 fékk 10 laxa. Tilheyrðu veiðimenn þessir veiðifélaginu Óðfluga. Einn félaganna sendi okkur pistil og sagði meðal annars: ,,Við félagarnir vorum í Stóru Laxá á svæði 1-2 og lönduðum 10 löxum og voru flestir laxarnir teknir á stórhættulegu fluguna Kolskegg sem laxarnir greinilega standast ekki og svo kom einn lax á Skrögginn. Það voru prófaðar allar flugur í boxunum en þegar Kolskeggurinn mætti á svæðið þá bara gerðist eitthvað. Við þökkum kærlega fyrir okkur."