Laxinn mættur í Stóru Laxá - missti tvo á Iðuna
This entry was posted on 21. June 2012
.Laxinn er mættur í Stóru Laxá í Hreppum. Veiðimenn sem voru við veiðar á fjórða og efsta svæði árinnar sáu eitthvað af laxi á svæðinu en ekki mikið. Þeir settu í tvo laxa á Iðu keilutúpu en þeir höfðu báðir betur.
Kröfluflugurnar eru að gefa mjög góða veiði hjá þeim sem nota þær. Við minnum veiðimenn á að Kröfluflugurnar eins og þær eiga að vera, sterkar og endingargóðar, fást aðeins í Veiðibúðinni Kröflu Höfðabakka 3. Við höfum heyrt margar sögur af lélegum eftirlíkingum í öðrum verslunum og viljum taka fram að þær flugur eru alls ekki frá okkur komnar.
Veiðin byrjaði með látum í Langá á Mýrum í morgun en á morgunvaktinni komu 22 laxar á land. Sögðu menn töluvert af fiski í ánni og ekki hvað síst á miðsvæði árinnar.