Stórkostleg laxveiði á Krókinn og Mýsluna
This entry was posted on 6. July 2012
.Við höfum stundum hér á Krafla.is fjallað um laxa- og silungaflugur og hvort ekki mega nota silungaflugur svokallaðar í laxveiði og öfugt. Við fengum á dögunum senda skemmtilega frásögn Magnúsar Ólasonar frá ævintýrum hans á bökkum Vatnsdalsár. Þar var Magnús mættur á bakka stórlaxaár með silungaflugur að vopni og ekki í fyrsta skipti.
Magnús komst svo að orði í pistli sínum til okkar sem við þökkum kærlega fyrir: ,,Um leið og ég þakka sendinguna (pöntun mín á Krafla.is) (með 3 aukaflugum) langaði mig að segja þér frá reynslu minni af Króknum. Ég hafði hlakkað til að segja Gylfa (heitnum) Kristjánssyni, höfundi Króksins, frá ævintýri í Vatnsdalnum í Laxá í Mývatnssveit sl. sumar, en við höfðum verið í sama holli síðustu árin hans þar.
Ég hafði mokað upp bleikju (og 2-3 löxum) á Mýsluna eftir að ég komst upp á lagið með andstreymisveiði 2003-4. Ég byrjaði svo með Krókinn 2005 eða 6 og það var algjör veisla, ca 30 bleikur á dag og einstaka lax (óvart!). Fyrsta árið mitt í laxveiði var 2007 og þá líka í Vatnsdalsá. Ég fékk 2 laxa - og báða á Krókinn! Það var ekki nýtt fyrir mig, en annar var 18 pund (96 cm) og það var ekki óvart, því ég hafði séð hann og hann var á í 3ja kasti andstreymis með fimmu! Mögnuð fluga og magnaður fiskur!!"
Svo mörg voru þau orð. Það er ekki bara í silungsveiðinni sem Krókurinn og Mýslan eru afburðaflugur. Laxarnir vilja þær ekki síður og sjóbirtingarnir.
Ef veiðimenn sem þetta lesa hafa áhuga á að eignast þessar flugur eins og þræ eiga að vera fást þær eingöngu í Veiðibúðinni Kröflu, Höfðabkka 3.